Íslandsbanki íhugaði að kaupa Byr af kröfuhöfum 4. apríl 2010 11:51
Íslandsbanki á verulegra hagsmuna að gæta í endurskipulagningu Byrs sparisjóðs. Breiðengi ehf , eignarhaldsfélag Íslandsbanka á um 3,3% stofnfjár í Byr en auk þess lánaði Glitnir stofnfjáreigendum í Byr tíu milljarða króna þegar stofnfjáraukning í sparisjóðnum fór fram árið 2007. Þau lán eru að miklu leyti í vanskilum. Þá er Íslandsbanki einnig kröfuhafi í Byr. Samkvæmt heimildum fréttastofu sýndi Íslandsbanki áhuga á að taka með beinum hætti þátt í endurskipulagningu Byrs sparisjóðs og voru hugmyndir um að Íslandsbanki keypti kröfuhafa Byrs út og tæki yfir sparisjóðinn meðal annars viðraðar. Það hefði þýtt að framlag ríkisins til sparisjóðsins yrði mun lægra en ella og jafnvel ekki neitt. Ekki mun þó verða úr þessum áætlunum. Þær upplýsingar fengust frá Íslandsbanka að bankinn hafi alltaf haft áhuga á að koma að endurskipulagningu Byrs og hafi bankinn fylgst náið með atburðarrásinni. Íslandsbanki hafi átt í samskiptum við forráðamenn Byrs vegna þessa en engar formlegar viðræður hafi farið fram. Endurskipulagning Byrs er á lokastigi en það sama á við um endurskipulagningu annarra sparisjóða. Heimildir herma að stefnt sé að því að ljúka því verkefni á næstu tveimur vikum. Endurskipulagning sparisjóðakerfisins er meðal þess sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur áherslu á að sé lokið þegar önnur endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands fer fram. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður stofnfé Byrs fært niður um allt að 90% og mun ríkissjóður leggja sjóðnum til um 10 milljarða króna. Gangi þessar áætlanir eftir verður ríkið stærsti eigandi Byrs.
Mest lesið Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Sjá meira