Viðskipti innlent

Petrobras ætlar á toppinn

Olíuborpallur Brasilíumenn stefna hátt í olíuheiminum. NordicPhotos/Getty
Olíuborpallur Brasilíumenn stefna hátt í olíuheiminum. NordicPhotos/Getty Nordicphotos/Getty
Brasilíska olíufyrirtækið Petrobras hyggur hátt, en það áætlar að verða stærsti olíuframleiðandi heims árið 2015.

Fundur mikilla olíulinda í hafinu út af ströndum landsins síðustu ár hefur gefið góðar vonir og hefur verið ákveðið að leggja út í framkvæmdir fyrir um 25 þúsund milljarða íslenskra króna á næstu fimm árum. Petrobras stefnir að því að framleiða um 5,4 milljónir tunna af olíu á dag, en BP var stærsti framleiðandinn í fyrra með rétt tæplega fjórar milljónir tunna á dag.

Fyrirtækið er að meirihluta í eigu brasilíska ríkisins.

@Mark.Undirskrift:- þj





Fleiri fréttir

Sjá meira


×