Viðskipti innlent

Nýr framkvæmdastjóri Nýherja félags í Danmörku

Henrik R. Møller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Applicon A/S í Danmörku, að því er segir í tilkynningu frá Nýherja móðurfélagi Applicon.

Henrik R. Møller hefur starfað hjá Applicon í Danmörku undanfarin tvö ár. Hann starfaði áður hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Capgemini í fimm ár, þar af sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Capgemini í Danmörku.

Henrik er með MBA frá Scandinavian International Management Institute og Cand. Scient í tölvunarfræði frá Københavns Universitet.

Hann tekur við af Martin Nørballe, sem hafði starfað sem framkvæmdastjóri Applicon A/S frá 2005. Martin Nørballe mun áfram sinna þróunarverkefnum fyrir Nýherja hf. sem er móðurfélag Applicon A/S, að því er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×