Helmingur tapaðra starfa frá hruni er í mannvirkjagerð 8. apríl 2010 11:31 Þegar mest var um mitt ár 2008 var um það bil 11% af heildarvinnuafli starfandi við mannvirkjagerð eða tæplega 18.000 manns.
Tæplega helmingur eða 45% allra starfa sem tapast hafa í hópuppsögnum frá bankahruni hafa verið í mannvirkjagerð eða 2.400 störf.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í lok febrúar voru 20% atvinnulausra áður starfandi við mannvirkjagerð eða samtals rétt tæplega 3.000 manns. Þá eru ótalin þau störf í byggingariðnaði sem tapast hafa en eru ekki inn í þessum tölum m.a.vegna þess að þau voru unnin af erlendum farandverkamönnum sem hafa nú flutt af landi brott.Þegar mest var um mitt ár 2008 var um það bil 11% af heildarvinnuafli starfandi við mannvirkjagerð eða tæplega 18.000 manns. Störfum í mannvirkjagerð fjölgaði mjög mikið frá árinu 2004 enda var mikið um fjárfestingu í mannvirkjum á því tímabili og verðhækkanir á íbúðarhúsnæði miklar. Núna má gera ráð fyrir að fjöldi þeirra sem vinna við mannvirkjagerð sé svipaður og var rétt fyrir síðustu aldamót eða um það bil 7,5% af heildarvinnuafli.Alls bárust Vinnumálastofnun 3 tilkynningar um hópuppsagnir í marsmánuði þar sem sagt var upp 57 manns. Þetta er svipuð þróun og sést hefur það sem af er ári en fyrstu 3 mánuði ársins hafa að meðaltali 52 starfsmenn tapað vinnunni í hverjum mánuði í hópuppsögnum. Þannig hafa samtals 156 manns misst vinnuna í 10 hópuppsögnum það sem af er árinu.Þetta eru mun færri hópuppsagnir en á sama tímabili fyrir ári síðan, þegar 524 misstu vinnuna í 17 hópuppsögnum. Það virðist því vera að hópuppsagnir séu á undanhaldi enda hefur nú gríðarleg endurskipulagning átt sér stað í atvinnulífinu í kjölfar breyttra aðstæðna. Frá því að bankahrunið varð hafa samtals 5.539 manns misst vinnuna í samtals 141 hópuppsögn.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira