Niðursveiflan á húsnæðismarkaði hér mun lengri en ytra 6. maí 2010 11:54 Fjárfesting í íbúðarhúsnæði skrapp saman um 58% á síðasta ári frá fyrra ári og kemur sá samdráttur í kjölfar 22% samdráttar árið 2008.
Samkvæmt spá Seðlabanka Íslands um húsnæðisverð er enn nokkuð langt þar til viðsnúningur verður á húsnæðismarkaði en samkvæmt spánni mun húsnæðisverð enn fara lækkandi út næsta ár. Verði það raunin er ljóst að niðursveiflan á húsnæðismarkaði hér á landi verður mun lengri en í öðrum löndum í kringum okkur.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að niðursveiflan á íbúðamarkaði hefur nú þegar verið bæði djúp og langvinn en frá því að íbúðaverð náði hámarki í lok árs 2007 hefur verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 15% að nafnvirði og 35% að raunvirði.Algjör viðsnúningur hefur á þessum tíma orðið á íbúðamarkaði. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði skrapp saman um 58% á síðasta ári frá fyrra ári og kemur sá samdráttur í kjölfar 22% samdráttar árið 2008. Þetta er mikill viðsnúningur frá þróun fyrri ára, en árlegur meðalvöxtur íbúðafjárfestingar var í kringum 20% árin 2004 - 2007.Í nýjum Peningamálum Seðlabankans er gert ráð fyrir mun meiri samdrætti í fjárfestingu íbúðarhúsnæðis á þessu ári heldur en í spá bankans frá janúar síðastliðnum, eða 35% samdrætti í stað 19% áður. Uppfært mat Seðlabankans byggir á upplýsingum um mikið framboð íbúðarhúsnæðis á markaði um þessar mundir sem er engan veginn í takti við eftirspurn. Það ásamt því að enn er nokkuð í að fjárfestingageta heimilanna nái bata gerir það að verkum að búast má við að enn sé nokkuð til lands í því að íbúðamarkaðurinn nái vopnum sínum.Í raun má segja að miðað við hversu erfitt ytra umhverfið er íbúðamarkaðinum sæti það furðu að nafnverð íbúðarhúsnæðis skuli ekki hafa lækkað meira en raun ber vitni. Þá er mikil sveifla í mælingum á nafnverði íbúðarhúsnæðis og undanfarið hefur það jafnvel það hækkað á milli mánaða á leið sinni niður.Eins og Seðlabankinn hefur bent á er ákveðinn mælingarvandi hér á ferðinni en fæð samninga gerir það að verkum að óvissa er mikil og mælitækin gætu verið að gefa villandi mynd af því ástandi sem í raun er. Seðlabankinn bendir á að í reynd gæti hluti þeirra lækkunar sem enn er í kortunum verið komin fram á markaði en á eftir að koma fram í húsnæðisverðsvísitölum.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira