Eyjafjallajökull: Icelandair fékk 3000 símtöl á dag vegna eldgossins Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. maí 2010 10:30 Birkir Hólm segir mikilvægt að ná aftur þeim markaði sem tapaðist vegna gossins.
Um 3000 símtöl bárust á dag í þjónustuver Icelandair fyrstu dagana eftir að gosið í Eyjafjallajökli hófst. Þetta sagði Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, á Útflutningsþingi á Hilton Nordica Hotel í morgun. Gerðar hafi verið áttatíu breytingar á flugáætlunum félagsins á fjórtán dögum vegna gossins, en Icelandair setti upp sérstakan tengiflugvöll í Glasgow sem allt flug til Evrópu og Bandaríkjanna fór á tímabili um. Birkir sagði að gert væri ráð fyrir því að tekjutap ferðamannaiðnaðarins vegna eldgossins væri um 30-50 milljarðar króna. Mikilvægt væri að ná þeim markaði til baka sem tapast hefði og snúa neikvæðri umræðu í jákvæða. Birkir sagði annars að ferðaþjónusta hefði vaxið gríðarlega á undanförnum árum. Árið 2000 hefði um 302 þúsund ferðamenn komið til landsins en árið 2008 hefðu þeir verið um 503 þúsund. Þessi fjölgun hefði orðið þrátt fyrir að krónan hafi á þessu tímabili verið tiltölulega sterk. Birkir sagði að það væru enn sóknarfæri í ferðamennskunni. Mikilvægt væri að fjölga ferðamönnum sem koma til landsins yfir vetrarmánuði, frá september til maí. Að þessu leyti yrði horft til reynslu Finna en þar komi fleiri ferðamenn á veturna en á sumrin.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira