Viðskipti innlent

Greiðslukortavelta heimilanna eykst um 5,6%

Kreditkortavelta heimila jókst um 7,7% í janúar-júlí í ár miðað við janúar-júlí í fyrra. Debetkortavelta jókst um 3,5 % á sama tíma.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar. Þar segir að samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar-júlí 2010 um 5,6%. Greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 19,8% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 19,2% í janúar-júlí 2010 miðað við sömu mánuði 2009.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 9,8% (miðað við meðaltal vísitölunnar í janúar-júní) sem veldur 3,8% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu.

Tölum um erlenda greiðslukortaveltu hefur verið breytt frá apríl 2008 vegna nýrra upplýsinga frá einu kortafyrirtækinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×