Viðskipti innlent

Forbes telur vert að fylgjast með Rúnu Magnúsdóttur

Rúna Magnúsdóttir, eigandi Connected-Women.
Rúna Magnúsdóttir, eigandi Connected-Women.
Rúna Magnúsdóttir, eigandi Connected-Women.com og meðstofnandi BRANDit, komst á lista sem birtur var á heimasíðu viðskiptatímaritsins Forbes yfir tuttugu konur í alþjóðaviðskiptalífinu sem Forbes telur vert að fylgjast með.

Connected-Women.com er alþjóðleg samfélagssíða fyrir konur og BRANDit er fjögurra daga alþjóðleg þjálfunarstofa fyrir athafnakonur sem vakið hefur athygli víða um heim.

BRAND-it verður næst haldin í Reykjavík 14.-17. október og í Rotterdam í nóvember. Þá hefur félag kvenna í atvinnurekstri í Bretlandi óskað eftir því að setja upp BRANDit í London á næsta ári.- jma








Fleiri fréttir

Sjá meira


×