Ákvörðun um framtíð Haga gæti dregist í nokkra mánuði Sigríður Mogensen skrifar 20. janúar 2010 12:17
Svo gæti farið að ákvörðun um framtíð Haga muni jafnvel dragast um nokkra mánuði. Engar ákvarðanir voru teknar um málefni Haga á stjórnarfundi Arion banka í gærdag.Hagar, sem reka meðal annars verslanirnar Hagkaup, Bónus og 10-11 voru í eigu eignarhaldsfélagsins 1998, sem var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Árið 2008 fékk eignarhaldsfélagið rúmar 260 milljónir evra að láni hjá Kaupþingi til að kaupa Haga út úr Baugi. Á gengi dagsins í dag er sú skuld á bilinu 40-50 milljarðar króna.Kaupþing, nú Arion banki, tók yfir eignarhaldsfélagið fyrir skömmu og þar með 96% hlut í Högum. Feðgarnir Jón Ásgeir og Jóhannes Jónsson ásamt erlendum fjárfestum reyna nú að eignast Haga á nýjan leik og hafa gert Arion banka tilboð um fjárhagslega endurskipulagningu verslunarfyrirtækisins.Stjórn bankans fundaði í gær en samkvæmt heimildum fréttastofu voru engar ákvarðanir teknar um framtíð Haga, né afstaða tekin til tilboðs Jóns Ásgeirs og félaga.Starfsmenn fyrirtækjasviðs Arion banka og aðrir sérfræðingar hafa vegið og metið tilboðið með hliðsjón af stöðu Haga og áætluðu verðmæti. Ólíklegt er að málið verði leitt til lykta á næstu dögum og gæti ákvörðun um framtíð Haga jafnvel dregist í nokkra mánuði.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira