Atvinnuleysi minnkar, mældist 8,3% í maí 11. júní 2010 12:06
Skráð atvinnuleysi í maí 2010 var 8,3% en að meðaltali 13.875 manns voru atvinnulausir í maí og minnkar atvinnuleysi um 5,4% frá apríl, eða um 794 manns að meðaltali. Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að mest fækkar körlum á atvinnuleysisskrá eða um 727 að meðaltali en konum fækkar um 67 að meðaltali. Fækkunin er hlutfallslega meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu eða um 8,5% á landsbyggðinni og um 4% á höfuðborgarsvæðinu. Mest fækkar atvinnulausum í mannvirkjagreinum eða um 367 manns. Atvinnuleysið er 9,1% á höfuðborgarsvæðinu en 7% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 13,5%, en minnst á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra 3,6%. Atvinnuleysið er 8,8% meðal karla og 7,7% meðal kvenna. Alls voru 14.867 atvinnulausir í lok maí. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 12.222, af þeim voru 3.253 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl, á kynningarfundi og í vinnumiðlun. Fækkun atvinnulausra í lok maí mánaðar frá lokum apríl nam 1.065, en 915 færri karlar voru á skrá og 150 færri konur. Á landsbyggðinni fækkar um 579 og um 486 á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 8.723 og fækkar um 194 frá lokum apríl og er um 59% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í lok maí. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fækkar úr 4.662 í lok apríl í 4.620 í lok maí. Alls voru 2.735 á aldrinum 16-24 ára atvinnulausir í lok maí en 3.024 í lok apríl eða um 18% allra atvinnulausra í maí og fækkar um 289 frá því í apríl. Í maí 2009 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 3.734 og hefur því fækkað um nærri 1.000 frá maí 2009.
Mest lesið Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Sjá meira