Greining: Spáir því að verðbólgan minnki í 7,3% 19. maí 2010 10:56
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,2% í maímánuði. Gangi spáin eftir mun verðbólga minnka úr 8,3% í 7,3%. „Það er helst húsnæðisliðurinn sem þokar vísitölunni upp á við í maí að mati okkar, en vísbendingar eru um einhverja hækkun markaðsverðs á íbúðum á tímabilinu. Að honum slepptum virðist sem hækkun verðlags á neysluvörum og þjónustu hafi verið afar hóflegar síðustu vikur," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem spáin er birt. „Má það ekki síst þakka styrkingu krónu, en áhrifin af liðlega 3% styrkingu hennar frá áramótum til aprílloka eru þegar farin að koma fram í þeim liðum sem næmastir eru fyrir gengishreyfingum. Þannig er verðlag innfluttra matvæla tekið að lækka lítillega og eldsneyti hefur hækkað minna fyrir vikið en ella. Næstu þrjá mánuðina (maí -júlí) spáum við samtals 0,3% hækkun VNV, sem samsvarar ríflega 1,2% verðbólgu á ársgrundvelli. Ef það gengur eftir hefur þriggja mánaða takturinn ekki verið hægari síðan í ársbyrjun 2007. Í kjölfarið spáum við því að verðbólga verði 3,4% í árslok, og að hún muni fara niður í 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans að áliðnu sumri árið 2011. Á meðan ekki verður mikil breyting á gjaldeyrishöftum má ætla að krónan veikist ekki umtalsvert og gerum við í spánni ráð fyrir að hún styrkist áfram hægt og bítandi næstu misserin. Erlendis er lítill þrýstingur til hækkunar verðlags á neysluvörum og hrávörum þessa dagana og því gerum við ráð fyrir að innfluttar vörur hækki almennt lítið í verði á næstunni."
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira