Viðskipti innlent

Áratugalangt starf í hættu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eigendur Vörumerkingar sjá á eftir áratugalöngu starfi hjá fyrirtækinu verði ekkert að gert.
Eigendur Vörumerkingar sjá á eftir áratugalöngu starfi hjá fyrirtækinu verði ekkert að gert.
Stjórnendur Vörumerkingar sjá fram á að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta eftir 48 ár í rekstri sömu aðila. Ástæðan er gengishrun krónunnar, verðbólga og himinháir vextir, sagði Karl M. Karlsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Sagt var frá því í vikunni að Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður BM Vallár, hefði kvatt starfsfólk sitt eftir áratuga starf hjá fyrirtækinu. Héraðsdómur væri búinn að taka fyrir beiðni um gjaldþrotaskipti fyrirtækisins. Vilhjálmur sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að ævistarfið væri fyrir bí.

Að óbreyttu munu stjórnendur fyrirtækisins Vörumerking standa í sömu sporum og Víglundur innan fárra vikna. „Það má segja að við höfum farið i ákveðna stefnumótun í kringum 2000 og lögðum línurnar fyrir næstu ár i uppbyggingu á félaginu," sagði Karl M. Karlsson framkvæmdastjóri. Þetta hefði þýtt endurnýjun á tækjakosti og öðru slíku sem lítur að rekstri. „Það sem hvílir á nýjum vélum hefur hækkað um 110% frá árslokum 2007 til ársloka 2009," sagði Karl. Fyrirtækið réði einfaldlega ekki við slíkar hækkanir.

Karl segist enn vera að tala við Lýsingu, sem er fjármögnunarfélag sem Vörumerking hefur átt viðskipti við og jafnframt Landsbankann, en eins og málin standi núna sé útlitið svart. Hann gagnrýnir það jafnframt að þrátt fyrir að beðið sé hæstaréttardóms um það hvort gengistryggð lán hafi verið lögleg sé þegar byrjað að setja félög í þrot. Hann segir að Vörumerking sé í góðum rekstri og njóti góðs af því að Íslendingar hafi, eftir hrun, sótt í meira mæli í íslenska framleiðslu. Skuldastaðan sé hins vegar slæm af fyrrgreindum ástæðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×