Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar um 50 milljarða Sigríður Mogensen skrifar 19. maí 2010 18:30
Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar um 50 milljarða vegna samkomulags sem Seðlabanki Íslands hefur gert við Seðlabankann í Lúxemborg. Fjórðungur af krónueign í erlendri eigu flyst heim, en hundruð milljarða krónueign útlendinga er ein meginástæða gjaldeyrishaftanna. Seðlabankastjóri segir samkomulagið skref í átt að afnámi þeirra. Samkomulagið var undirritað í Lúxemborg í gær. Forsaga málsins er sú að Landsbankann sárvantaði erlent lánsfé sumarið 2008. Bankanum tókst að fá lán hjá Seðlabankanum í Lúx fyrir tugi milljarða með veði í skuldabréfum Avens B.V. félags í eigu Landsbankans. Landsbankinn lagði íslensk skuldabréf inn í það félag sem tryggingu fyrir lánunum. Avens varð stærsti einstaki eigandi krónueigna utan Íslands, með eignir upp á 120 milljarða króna. Við bankahrunið varð Seðlabankinn í Lúx stærsti eigandinn, þar sem eignir Avens voru veðsettar seðlabankanum. Seðlabanki Íslands og ríkið hafa nú keypt skuldabréf Avens og hafa þannig fullt yfirráð yfir eignum félagsins. Seðlabankinn greiðir fyrir þessi kaup með rúmlega 400 milljóna evra skuldabréfi útgefnu af ríkissjóði til 15 ára auk reiðuféi upp á 35 milljónir evra og 6 milljarða króna. Með samkomulaginu aukast skuldir ríkisins í erlendri mynt. Á móti kemur að skuldir ríkisins við erlenda aðila í krónum lækka mun meira á móti. Í heild lækkar erlend skuldastaða þjóðarbúsins um 50 milljarða króna. Krónan hefur styrkst í dag.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Sjá meira