Viðskipti innlent

Skipti hf. hagnast um 5,5 milljarða á sölu Sirus IT

Øystein Moan, forstjóri Visma og Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta.
Øystein Moan, forstjóri Visma og Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta.
Skipti hf., móðurfélag Símans, hafa selt upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Kaupandi er norska upplýsingafyrirtækið Visma. Kaupverð er trúnaðarmál en með sölunni mun heildarhagnaður Skipta vegna fjárfestingarinnar í Sirius IT nema um 5,5 milljörðum íslenskra króna.

Í tilkynningu segir að greitt er fyrir hlutinn með reiðufé. Skipti mun í kjölfar sölunnar greiða skuldir niður hraðar en áætlað var og munu skuldir Skiptasamstæðunnar lækka um alls 8,7 milljarða króna við söluna á Sirius IT.

Í nóvember 2006 stofnaði Skipti Sirius IT í samvinnu við lykilstjórnendur, til að kaupa þann hluta af starfsemi finnska upplýsingatæknifyrirtækisins TietoEnator sem einkum sinnir opinberum aðilum. Rekstur Sirius hefur gengið vel og fyrirtækið skilað góðri afkomu.

Á seinasta ári námu tekjur félagsins 435 milljónum danskra króna, sem nemur um 9,1 milljarði íslenskra króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 66 milljónir danskra króna, um 1,4 milljarðar íslenskra króna. Visma, sem nú kaupir Sirius IT, hefur verið samstarfsaðili fyrirtækisins í þróun lausna fyrir lyfsölumarkað sem hafa gengið afar vel.

„Sirius IT hefur reynst afar farsæl fjárfesting fyrir Skipti. Á rúmum þremur árum hefur fyrirtækið náð mjög góðri stöðu á norrænum upplýsingatæknimarkaði. Starfsfólk og stjórnendur hafa unnið frábært starf og gert fyrirtækið að því sem það er í dag," segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta

„Það er ljóst að aðstæður hafa breyst hjá Skiptum, við leggjum höfuðáherslu á kjarnastarfsemi fyrirtækisins, fjarskipti og samtvinnun fjarskipta og upplýsingatækni á heimamarkaði okkar, Íslandi. Visma er í mjög góðri stöðu til að halda áfram að þróa Sirius IT sem fyrirtæki, í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk. Söluverðið er mjög ásættanlegt og það er jákvætt að hagnast um 5,5 milljarða króna af erlendri fjárfestingu á þessum tímum. Við munum nýta þá fjármuni sem fást við söluna til að styrkja fjárhagsstöðu Skipta og greiða niður skuldir hraðar en áformað var."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×