SSB ræddi þjófnað á arði við Íslandsbankastjóra 20. júní 2010 12:20
Í síðustu viku átti stjórn Samtaka stofnfjáreigenda í Byr (SSB) tveggja tíma fund með Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, og tveimur lögfræðingum bankans. Meðal annars var rætt um meintan þjófnað Glitnis af arði stofnfjárbréfa í Byr sem keypt voru í janúar 2008. „Þetta var mjög athyglisverður fundur þar sem skipst var á skoðunum," segir á vefsíðu SSB. Á vefsíðunni kemur fram að tilurð fundarins var á þann veg, að Birna var ósátt við þá staðhæfingu Sveins Margeirssonar að hún hefði verið verkefnastjóri yfir lánaverkefninu til stofnfjáraðila Byrs. Hún hafði því samband við Svein og í þeim samræðum ákváðu þau að halda ofangreindan fund. Fundargerð fundarins mun verða sett inn á vefsíðunaþegar hún er tilbúin. Í annarri færslu á vefsíðu SSB vill Guðjón Jónsson vekja athygli þeirra stofnfjáraðila, sem keyptu stofnfjárbréf í BYR í aukaútboðinu, sem fór fram í janúar 2008, á því að Glitnir stal arðinum af þessum bréfum. „Þessi bréf voru ekki fjármögnuð af Glitni, og ekki veðsett af Glitni, og þar afleiðandi átti Glitnir engan rétt á því að fá arðinn af þeim greiddan. Engu að síður hirti bankinn arðinn af þessum bréfum án þess að tala við kóng eða prest. Þetta kallast þjófnaður á góðri íslensku," segir Guðjón. „Ég hef rætt þetta við Björn Sveinsson, útibússtjóra Íslandsbanka, og lögfræðing sem hann hafði sér til fulltingis. Þeir viðurkenndu, að Glitnir hefði ekki átt rétt á þessum peningum, en töldu að Íslandsbanki gæti ekki greitt þá til baka. Á fundi með sem stjórn SSB átti með Birnu bankastjóra Íslandsbanka var þetta mál kynnt, og hvöttu þau til að þetta yrði kært. Næsta skref er því að kæra formlega fyrir þennan þjófnað. Þetta er að vísu ekki stór upphæð, en þetta sýnir best hvernig Glitnir meðhöndlaði okkur auma stofnfjáreigendur með algjörri fyrirlitningu."
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Erlent félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira