Viðskipti innlent

Algjört brjálæði að borga nafnvexti af niðurfærðum lánum

Sigríður Mogensen skrifar
"Það er algjört brjálæði að bankarnir rukki vexti af nafnverði lána, þegar búið er að færa lán til heimila niður um helming í bókum bankanna", segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Það sé algjört réttlætismál að heimilin fái leiðréttingu á skuldum og þingmönnum beri skylda til að taka á þessum málum.

Morgunblaðið greinir frá því í dag að lán til viðskiptavina bankanna hafi verið færð á meira en helmingsafslætti yfir í nýju bankana í október 2008. Sambærilegar tölur voru birtar í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í kjölfar fyrstu endurskoðunar á efnahagsáætlun Íslands, sem Viðskiptablaðið greindi frá.

Tryggvi Þór Herbertsson segir að þetta staðfesti það sem menn héldu fram fyrir rúmu ári síðan. Að svigrúm væri til að afskrifa hluta af lánum heimilanna.

„Bankarnir sitja núna með þessi lán afskrifuð á bókum sínum og láta almenning síðan borga vexti af nafnverðinu, sem er algjört brjálæði og sýnir óréttlætið í þessari meðferð," segir Tryggvi.

Með tilliti til þess forsendubrests sem orðið hefur í lánasamningum segist Tryggvi vilja sjá aðgerðir. „Það er náttúrulega algjört réttlætismál að taka á þessum málum," segir hann.

Tryggvi segir að afskriftirnar séu miðaðar við að það sé gengið hart fram gagnvart öllum og óumflýjanlega fari einhver heimili í þrot. En með því að afskrifa bæti bankarnir lánasöfnin, því fleiri geti staðið í skilum og innheimturnar verði betri. Með þeirri aðferð sé hægt að leiða afskriftirnar frá bönkunum og beint til heimila. Tryggvi hefur haldið þessu fram í rúmt ár en ekki fengið miklar undirtektir.

„Við skulum vona að þessar upplýsingar nýtist mönnum og þeir skammist til að fara að gera eitthvað," segir Tryggvi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×