Fjöldi ríkisstofnanna hundsaði tilmæli um launalækkun 6. desember 2010 14:35
Nær fjórar af hverjum tíu ríkisstofnunum hundsuðu tilmæli ríkisstjórnarinnar sumarið 2009 um að lækka laun þeirra starfsmanna sinna sem voru með yfir 400 þúsund kr. í mánaðarlaun. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkiendurskoðunnar um ríkisreikning fyrir árið 2009. Hinn 14. ágúst 2009 gaf ríkisstjórnin út tilmæli til ráðuneyta og stofnana um að lækka launa umfram 400 þús.kr. á mánuði. Stefnt var að því að ná fram 3-10% lækkun með fækkun svonefndra eininga og yfirvinnustunda. Fjármálaráðuneytið átti í samvinnu við hlutaðeigandi ráðuneyti að hafa forgöngu um að útfæra leiðir til að ná þessu markmiði. Könnun Ríkisendurskoðunar leiddi í ljós að fjölmargar stofnanir urðu ekki við tilmælum ríkisstjórnarinnar. Ríkisendurskoðun gagnrýnir hvernig fjármálaráðuneytið og önnur ráðuneyti stóðu að því að kynna þau og leiðbeina um framkvæmd þeirra. Nauðsynlegt er að tilmæli til stjórnenda stofnana séu skýr og valdi ekki misskilningi eða misræmi í framkvæmd. Gerð var könnun meðal ráðuneyta og stofnana og spurt hvernig tilmælin hefðu verið framkvæmd á árunum 2009 og 2010. Könnunin náði til samtals 197 aðila. Í ljós kom að 61% af þeim aðilum sem svöruðu könnuninni höfðu farið að tilmælunum á árinu 2009 en 39% höfðu ekki gert það. Mismunandi var til hve margra starfsmanna breytingarnar náðu. Hjá nokkrum svarendum voru einungis lækkuð laun forstöðumanns í samræmi við úrskurð kjararáðs. Hjá mörgum þeirra svarenda sem ekki höfðu lækkað laun fengu starfsmenn ekki greitt fyrir ómælda fasta yfirvinnu. Hjá 47% svarenda stendur til að lækka laun á árinu 2010 í samræmi við tilmælin. Hjá öllum aðalskrifstofum ráðuneytanna voru heildarlaun umfram 400 þúsund kr. á mánuði lækkuð.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Viðskipti erlent