Áhætta fylgir markaðsskráningu 3. júní 2010 00:01 Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka segir langflest fyrirtæki sem fengið hafa fjárhagslega endurskipulagningu þurfa tíma til þess að laga reksturinn að ógreiddum skuldum.
Viðskipti Mikill ábyrgðarhlutur er að setja fyrirtæki í almenna sölu á hlutabréfamarkaði og bjóða þannig öðrum en fagfjárfestum að kaupa vegna áhættunnar sem fylgir slíkum kaupum, segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar hefur lýst efasemdum um að byrja eigi á að selja fagfjárfestum, sem síðar skrái fyrirtækin á markað. Birna segir hins vegar langflest fyrirtæki sem fengið hafa fjárhagslega endurskipulagningu þurfa tíma til þess að laga reksturinn að skuldum sem enn sitja í þeim. „Auk þess eru margir óvissuþættir í rekstrarumhverfi fyrirtækja í dag. Ég held því að í flestum tilvikum sé betra að selja slík félög í opnu ferli til fagfjárfesta sem framkvæmt hafa áreiðanleikakönnun áður en hann ræðst út í fjárfestinguna," segir hún. Þeir geti svo undirbúið fyrirtækin fyrir skráningu á hlutabréfamarkað. Ella þyrftu bankarnir að eiga fyrirtækin lengur til þess að gera þau hæf til sölu á almennum hlutabréfamarkaði. Í dag segir Birna banka einmitt gagnrýnda fyrir að halda of lengi á slíkum eignarhlutum. „En auðvitað eru til fyrirtæki í eigu bankanna sem geta farið beint á markað. Það er mikilvægt þar sem uppbygging hlutabréfamarkaðar er mikilvæg forsenda endurreisnarinnar," bætir hún við. - óká
Mest lesið Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Viðskipti erlent Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent „Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Atvinnulíf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Fleiri fréttir Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Sjá meira