Glitnissjóðir höguðu sér eins og bankar 12. apríl 2010 19:18 Sjóðir innan Glitnis höguðu sér eins og bankar.
Sjóður 9, sem tilheyrði Glitni, stækkaði ótrúlega hratt á stuttum tíma samkvæmt rannsóknarskýrslunni. Frá apríl 2007, eftir að Baugur Group varð stór hluthafi í Glitni, jukust fjárfestingar Sjóðs 9 um allt að 400 prósent. Þegar farið er yfir samsetningu sjóðsins má sjá að hann var nær eingöngu samansettur af hlutabréfum úr Baugi og tengdum félögum eins og Atorka, Gnúpur, Landic Propertys og svo framvegis. Í lok árs 2007 átti sjóðurinn verðbréf útgefnum af Baugi fyrir 13,5 milljarða króna. Þá voru það 9,7 prósent af heildareignum sjóðsins. Dæmi eru um að sjóðir innan Glitnis sjóða hafi átt viðskipti sín á milli með óskráð og illseljanleg verðbréf. Þá segir í skýrslunni að undir lok tímabilsins voru sjóðirnir farnir að starfa meira eins og bankar en fjárfestingarsjóðir. Þetta kemur meðal annars fram í því að farið var að krefjast trygginga gagnvart einstökum útgefendum og fjárfestingar í verðbréfum háðar sérstökum skilmálum um ráðstöfun andvirðis bréfanna. Rannsóknarnefnd Alþingis gerir líka athugasemd við það að sjóðir sem þessir skuli hafa keypt útgáfur skuldabréfa í heild, eins og Sjóður 9 gerði. Erfitt var að meta markaðsvirði slíkra bréfa og einnig mátti efast um seljanleika þeirra. Einn stjórnarmanna í Sjóði 9 var Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sjá meira