Segja Landsbankann hafa brotið lög með lánum til Björgólfs Þorbjörn Þórðarson skrifar 12. apríl 2010 21:00
Björgólfsfeðgar beittu Landsbankanum til þess að fjármagna rekstur eigin fyrirtækja og Björgólfur Thor fékk 24 milljarða króna lán rétt fyrir bankahrunið. Rannsóknarnefnd Alþingis telur að bankinn hafi brotið lög með lánum til Björgólfs Thors og tengdra aðila. Björgólfsfeðgar og félög tengd þeim voru með stærstu lántakendum íslensku bankanna fyrir hrunið. Heildarútlán móðurfélaga stóru bankanna þriggja til Björgólfs Guðmundssonar og tengdra aðila fór hæst yfir 1,3 milljarða evra eða 220 milljarða króna. Útlán til hóps Björgólfs Thors fóru hæst í rúmlega 1,4 milljarða evra eða um 240 milljarða króna. Þá kemur fram í skýrslunni að Landsbankinn í Lúxemborg hafi að umtalsverðu leyti verið notaður til þess að fjármagna starfsemi fyrirtækja Björgólfs Thors, en hann var stærsti lántakandinn og námu lán til hans og tengdra félaga alls 300 milljónum evra eða rúmlega fimmtíu milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Fjármögnun í þágu Björgólfs Thors kristallast dálítið vel í lánveitingu rétt fyrir hrunið en hinn 30. september 2008, aðeins viku fyrir hrun og daginn eftir þjóðnýtingu Glitnis, fékk Björgólfur Thor lán upp á 153 millljónir evra, eða um 24 milljarða króna, hjá Landsbankanum í Lúxemborg. Síðustu 18 mánuðina fyrir fall Landsbankans sveifluðust heildarútlán móðurfélagsins til hóps Björgólfs Thors í kringum 20 prósent af eiginfjárgrunni Landsbankans, en þess má geta að Landsbankinn reiddi sig að stórum hluta á Icesave-reikningana til að fjármagna sig á þessum tíma. Á einum tímapunkti námu áhættuskuldbindingar, þ.e útlán, gagnvart Björgólfi Thor 50 prósent af eigin fé Landsbankans. Rannsóknarnefnd Alþingis telur að um meiriháttar brot hafi verið að ræða á 30. gr. laga um fjármálafyrirtæki. Í skýrslunni segir jafnframt að brot bankans hafi verið sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að lántakinn var annar af aðaleigendum hans.
Mest lesið Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Sjá meira