Nokkrir mikilvægir hagvísar birtir í vikunni 29. mars 2010 13:08
Í Morgunkorni Íslandsbanka er bent á að nokkrir mikilvægir hagvísar verði birtir nú í vikunni. Á morgun mun Capacent Gallup birta væntingavísitölu sína fyrir marsmánuð, Hagstofan mun birta tölur um nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja og á miðvikudaginn mun Hagstofan birta vöruskipti við útlönd í febrúar. Væntingavísitalan hækkaði í febrúar um 9 stig frá fyrri mánuði og mældist 46,2 stig sem er næsthæsta gildi vísitölunnar frá því í október árið 2008. „Auk þess var þetta fjórði mánuðurinn í röð sem vísitalan hækkar miðað við sama tíma fyrir ári en í febrúar í fyrra mældist vísitalan 24,3 stig. Er því ljóst að íslenskir neytendur töldu ástandið í febrúar ekki jafn slæmt og á sama tíma fyrir ári og ekki eins svart og það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna," segir í Morgunkorni. Í janúar síðastliðnum voru alls 92 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er ríflega fjórðungi fleiri en á sama tíma árið á undan. „Er þetta í takt við þá þróun sem verið hefur síðustu misseri. Jafnframt var mun minna um nýskráningar einkahlutafélaga á þessum fyrsta mánuði ársins en á sama tíma fyrir ári. Þannig voru skráð 157 ný einkahlutafélög nú í janúar en á sama tíma í fyrra voru þau 223. Þetta jafngildir 30% fækkun milli ára," segir ennfremur. Þá verður einnig áhugavert að sjá vöruskiptin við útlönd í febrúar sem samkvæmt bráðabirgðatölum voru hagstæð um tæplega 13,9 ma.kr. „Er þetta nokkuð meiri afgangur en var á vöruskiptum í febrúar árið á undan, eða sem nemur um 5,9% á föstu gengi miðað við vísitölu meðalgengis. Þessi myndarlegi afgangur í mánuðinum skrifast fyrst og fremst á samdrátt í innflutningi sem dróst saman um 9,6% frá sama tíma fyrir ári að teknu tilliti til gengisbreytinga. Útflutningur dróst nokkuð saman frá sama tíma í fyrra, eða sem nemur um 5,3% á föstu gengi. Þennan samdrátt í útflutningi má þó einkum rekja til þess að í febrúar 2009 nam verðmæti útfluttra skipa og flugvéla 7,4 mö.kr. Að þeim lið frátöldum jókst útflutningur um 17,2% á föstu gengi á þessu tímabili."
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira