Ríkissjóður fékk bestu vaxtakjör frá júní í fyrra 14. apríl 2010 10:53 Ekki liggja fyrir upplýsingar um af hvaða tagi kaupendur ríkisvíxlanna voru í gær. Það má þó leiða að því líkur að erlendir aðilar hafi þar verið fyrirferðarmiklir
Ríkissjóður má vel una við niðurstöðuna í ríkisvíxlaútboðinu sem haldið var í gærdag. Umframeftirspurn hefur ekki verið jafn mikil síðan í nóvember á síðasta ári og vaxtakjör ríkissjóðs í útboðinu nú eru þau bestu frá júní í fyrra. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að fjárfestar reyndust áhugasamir um ríkisvíxlaútboðið sem haldið var hjá Lánamálum ríkisins í gær. Alls námu tilboð í ríkisvíxlaflokkinn RIKV 10 0816 ríflega 37,7 milljörðum kr. að nafnverði. Ákveðið var að taka ríflega helmingi tilboðanna, eða 20 milljörðum kr. á 6,74% flötum vöxtum. Eftir útboð gærdagsins hefur heildarstabbi útistandandi ríkisvíxla minnkað aðeins, þ.e. úr 78,0 milljörðum kr. í 76,6 milljarða kr. þar sem næstkomandi fimmtudag er ríkisvíxlaflokkur upp á 21,4 milljarðar kr. á gjalddaga. Ekki liggja fyrir upplýsingar um af hvaða tagi kaupendur ríkisvíxlanna voru í gær. Það má þó leiða að því líkur að erlendir aðilar hafi þar verið fyrirferðarmiklir í ljósi þess að þeir áttu um 73 milljarða kr. í ríkisbréfaflokknum sem var á gjalddaga í síðasta mánuði og hafa þeir orðið að ráðstafa því fé með einhverjum hætti. Jafnframt voru erlendir aðilar stórtækir kaupendur í útboðinu á þeim ríkisvíxlaflokki sem er á gjalddaga næstkomandi fimmtudag. Þannig höfðu þeir upphaflega keypt ríkisvíxla fyrir 14,5 milljarða kr. í desemberútboðinu, eða sem nemur um 68% af seldum bréfum. Því er afar líklegt að erlendir aðilar hafi eignast stærstan hins nýja víxlaflokks eftir útboðið í gær, líkt og í undanförnum útboðum.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira