Ölvisholt gjaldþrota og eigendur vilja kaupa reksturinn Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. ágúst 2010 17:22 Jón Elías Gunnlaugsson, rekstrarstjóri Ölvisholts og fyrrverandi eigandi fyrirtækisins, en hann átti Ölvisholt ásamt Bjarna Einarssyni. Þeir freista þess nú að kaupa reksturinn, en fyrirtækið er gjaldþrota. Vísir.is/pjetur
Íslenska brugghúsið Ölvisholt sem framleiðir m.a Skjálfta, Freyju og Lava bjórana hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptastjóri þrotabúsins segir þó að reynt verði að tryggja rekstur brugghússins áfram. Með úrskurði Héraðsdóms Suðurlands sem kveðinn var upp hinn 30. júlí síðastliðinn var bú Ölvisholts tekið til gjaldþrotaskipta. Christiane Leonor Bahner er skiptastjóri þrotabúsins. Hún segir í samtali við Morgunblaðið í dag að reynt verði að tryggja rekstur brugghúsins áfram. Fréttastofa náði tali af Christiane í morgun en hún var upptekin og ekki í aðstöðu til að veita fréttastofu viðtal. Bjarni Einarsson, annar fyrrverandi eigenda Ölvisholts og núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði í samtali við fréttastofu nú í morgun að brugghúsið yrði rekið áfram í eigu þrotabúsins og vörur þess, bjórar eins Freyja, Skjálfti, Móri og Lava yrðu áfram seldar í vínbúðum og veitingahúsum hér á landi. Hann vildi ekki svara spurningum um hvað það hefði verið sem valdið hefði erfiðleikum í rekstrinum og vildi ekki svara spurningum um gjaldþrotið að öðru leyti. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hyggjast fyrrverandi eigendur fyrirtækisins, áðurnefndur Bjarni Einarsson og Jón Elías Gunnlaugsson, sem er rekstrarstjóri fyrirtækisins, reyna að kaupa reksturinn af þrotabúinu og eru ákveðnar þreifingar hafnar í þeim efnum.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fleiri fréttir Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Sjá meira