Gjaldeyrissakamál hugsanlega í uppnámi vegna lagaklúðurs Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. nóvember 2010 18:35
Gjaldeyrisreglur Seðlabankans voru ekki birtar með réttum hætti fyrr en í október síðast liðnum og voru því óskuldbindandi, að mati hæstaréttarlögmanns. Ef það verður niðurstaða dómstóla gæti það haft áhrif á fjölda mála þar sem menn eru grunaðir um að brjóta gegn höftunum. Reimar Pétursson, hæstaréttarlögmaður, hefur skrifað grein um gjaldeyrisreglur Seðlabankans í nýjasta tölublað Lögmannablaðsins sem kemur út í desember næstkomandi. Reimar telur að gjaldeyrisreglurnar hafi ekki verið réttilega birtar þangað til í október síðastliðnum og þar með hafi þær verið óskuldbindandi fyrir þann tíma, þar sem samþykki ráðherra sem var skilyrði fyrir gildistöku reglnanna var ekki réttilega birt fyrr en þá að hans mati. „Það er þannig samkvæmt lögunum að gildi reglnanna er háð því að ráðherra samþykki að þær séu gerðar. Svo þarf að birta reglurnar til þess að þau taki gildi, en ég fæ ekki séð að samþykki ráðherra hafi verið birt í stjórnartíðindum og því binda reglurnar ekki borgarana," segir Reimar. Hægt er að setja þetta í samhengi við fjöldann allan af málum sem hafa verið til rannsóknar vegna gruns um brot á gjaldeyrisreglunum. Þar má til dæmis nefna umfangsmikið mál handboltakappans Markúsar Mána Michaelssonar og viðskiptafélaga hans, en efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra framkvæmdi húsleitir í janúar síðastliðnum vegna málsins. „Það myndi sega mér að öll slík mál væru tilhæfulaus," segir Reimar Pétursson. Hann segir að fleiri vankantar séu á gjaldeyrisreglunum því dómafordæmi séu fyrir því að löggjafinn geti ekki framselt til lægra sett stjórnvalds almennt vald til að setja refsiheimildir, eins og sé tilviki gjaldeyrisreglna Seðlabankans.
Mest lesið Fordómar: „Mætti halda að á Íslandi væri ekkert sölustarf til“ Atvinnulíf Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Viðskipti innlent BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Samstarf Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar lítillega Viðskipti innlent Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Viðskipti innlent Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Viðskipti innlent Kalla inn geislavirka límmiða Neytendur „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Sjá meira