Viðskipti innlent

Hátt í 160 milljarða tekjur af ferðamönnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gjaldeyristekjur Íslendinga af erlendum ferðamönnum voru 155 milljarðar í fyrra.
Gjaldeyristekjur Íslendinga af erlendum ferðamönnum voru 155 milljarðar í fyrra.
Gjaldeyristekjur Íslendinga af erlendum ferðamönnum voru 155 milljarðar króna í fyrra, samkvæmt nýjum tölum á vef Hagstofunnar. Tekjur vegna erlendra ferðamanna innanlands námu 112 milljörðum króna en 43 milljarðar króna eru tekjur vegna ferðamanna utan Íslands. Í tölunum kemur jafnframt fram að áætlað er að ríflega 9.200 manns hafi starfað við ferðaþjónustu á árinu 2008. Þetta er um 5,1% af störfum alls.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×