Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í rúmt ár 26. október 2010 12:28
Íslenskir neytendur hafa nú ekki verið svartsýnni í rúmt ár samkvæmt Væntingavísitölu Gallup í október sem birt var nú í morgun. Þannig hrapaði vísitalan um heil 35,7 stig milli mánaða og mælist nú 32 stig. Aðeins einu sinni áður hefur vísitalan lækkað svona mikið milli mánáða en það var í bankahruninu í nóvember árið 2008. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að engan þurfi að undra að vísitalan lækki á milli mánaða nú enda hefur fátt annað verið í fréttum undanfarnar vikur en skuldavandi heimilanna og yfirvofandi uppsagnir opinberra starfsmanna en mikill niðurskurður er boðaður í fjárlögum sem lögð voru fram í byrjun þessa mánaðar. Þó kemur þessi mikla lækkun nú töluvert á óvart enda hefur vísitalan farið hækkandi undanfarið og stóð í síðasta mánuði í næsthæsta gildi sem hún hefur náð frá því fyrir hrun. Frá bankahruninu hefur vísitalan mælst að meðaltali rúm 40 stig og er því augljóslega mun svartara yfir landanum nú en undanfarin misseri og um verulegt bakslag að ræða á þróun hennar. Eins og kunnugt er mælir vístalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. Allar undirvísitölur lækka að þessu sinni og munar þar mestu minnkandi tiltrú fólks á að ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar muni batna á næstunni. Þannig lækka væntingar neytenda til næstu 6 mánaða um heil 52,7 stig og mælast nú 48,6 stig og er um verulegt bakslag að ræða enda hefur vísitalan mælst yfir 100 stigum síðustu þrjá mánuði. Mat á núverandi ástandi lækkar um 10,2 stig og mælist nú 7 stig. Mat á atvinnuástandinu lækkar um 40,1 stig og mælist nú 32,5 stig og mat á efnahagslífinu um 34,9 stig og mælist nú 31,4 stig.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira