Landsbankinn telur launakjör starfsmanna eðlileg Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. júní 2010 12:01 Þegar fréttastofa óskaði eftir skýringum á þessu í morgun frá Landsbankanum, fengust þau svör að bankinn teldi þessi laun eðlileg.
Landsbankinn telur launakjör starfsmanna sinna, sem eru með hærri laun en forsætisráðherra, eðlileg og vísar til eigendastefnu ríkisins sem gefin var út af Bankasýslunni á síðasta ári. Eins fréttastofa greindi frá í gærkvöldi kemur fram í nýju árshlutauppgjöri Landsbankans, sem er nánast að öllu leyti í eigu ríkisins, að laun, fríðindi og lífeyrisgreiðslur til tuttugu stjórnenda bankans nemi að meðaltali 950 þúsund krónum á mánuði. Í nýlegum lögum um kjararáð er kveðið á um að föst laun fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, verði ekki hærri en föst laun forsætisráðherra, þau eru 935 þúsund krónur á mánuði. Tuttugu stjórnendur ríkisbankans Landsbankans eru því á hærri launum en forsætisráðherra. Þegar fréttastofa óskaði eftir skýringum á þessu í morgun frá Landsbankanum, fengust þau svör að bankinn teldi þessi laun eðlileg. Þau væru jafnframt í samræmi við tilmæli sem kæmu fram í eigendastefnu ríkisins sem Bankasýsla ríkisins hefði mótað. Í eigendastefnu ríkisins vegna eignarhalds á fjármálafyrirtækjum segir að opinber fjármálafyrirtæki, eins og Landsbankinn, skuli tileinka sér hófsemi þegar kemur að launum. Með þessu sé átt við að laun stjórnenda eigi að standast samanburð á markaðnum, en séu ekki leiðandi. Þetta er hins svegar ekki útskýrt frekar í eigendastefnunni og ekki er vikið að fjárhæðum.
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira