Mjög góð aflabrögð á karfamiðunum 2. júní 2010 10:29 Venus HF fór fyrstur togaranna til úthafskarfaveiðanna að þessu sinni eða í byrjun maímánaðar og Þerney RE fylgdi svo í kjölfarið.
Aflabrögð hafa verið mjög góð á karfamiðunum hjá togurum HB Granda og má heita að full vinnsla hafi verið um borð í skipunum frá fyrsta degi vertíðarinnar en afkastageta þeirra er um 40 til 50 tonn af fiski upp úr sjó á sólarhring. Hlé verður gert á úthafskarfaveiðum skipa HB Granda nú í vikunni vegna sjómannadagsins en fjórir frystitogarar félagsins hafa stundað veiðarnar undanfarnar vikur. Fjallað er um málið á vefsíðu HB Granda. Birkir Hrannar Hjálmarsson, rekstrarstjóri togara HB Granda, segir þar að í ár hafi verið farið fyrr til úthafskarfaveiðanna en sl. tvö ár en það stafaði af lakari kvótastöðu í karfa og þorski á heimamiðum en oftast áður. ,,Venus HF fór fyrstur togaranna til úthafskarfaveiðanna að þessu sinni eða í byrjun maímánaðar og Þerney RE fylgdi svo í kjölfarið. Bæði þessi skip verða búin að veiða kvóta sína í úthafinu fyrir sjómannadaginn en þeir eru um 1.150 tonn af karfa fyrir hvort skip," segir Birkir Hrannar en til samanburðar má geta þess að í fyrra hófust úthafskarfaveiðar skipa HB Granda ekki fyrr en um 20. maí. Hinir tveir togarar félagsins sem stunda úthafskarfaveiðar á þessari vertíð, Helga María AK og Örfirisey RE, fóru seinna til veiða en Venus og Þerney og að sögn Birkis Hrannars munu þau eiga eitthvað óveitt af kvótum sínum þegar skipin koma til hafnar nú í vikunni. Von er á Venusi og Þerney á morgun en Helgu Maríu og Örfirisey á föstudagskvöld. Þess má geta að heildarkarfakvóti HB Granda í úthafinu er um 4.600 tonn á þessu ári. ,,Það er mat sumra skipstjóra að það sé meira um karfa á ferðinni á Reykjaneshryggnum í ár en undanfarin ár. Smærri karfi er farinn að sjást með grynnra en eftir því var fyrst tekið í fyrra. Það verður að teljast góðs viti því smærri karfinn hvarf alveg úr veiðinni á tímabili," segir Birkir Hrannar en hann upplýsir að karfatorfan, sem veitt hefur verið úr, hafi stundum haldið sig rétt innan við landhelgislínuna en þó oftast verið á sjálfri línunni og fyrir utan hana. Aflabrögðin hafa almennt verið góð þrátt fyrir að segja megi að þarna hafi stundum verið þétt setinn bekkurinn. Þegar best eða verst lét, allt eftir því hvernig horft er málin, voru um og yfir 50 skip að veiðum á tiltölulega afmörkuðu svæði í nágrenni íslensku lögsögumarkanna á Reykjaneshryggnum.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira