Dæmdir fyrir að selja ýsu sem þorsk og keilu sem steinbít Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. júní 2010 11:58 Yfirlögfræðingur Fiskistofu sagði við aðalmeðferð málsins að brot tvímenninganna væru alvarleg. Þeir hefðu blekkt kaupendur og háttsemin gæti skaðað íslenskan sjávarútveg því útlendir kaupendur þyrftu að geta treyst merkingum.
Starfsmaður og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Nordic Gourmet hafa verið dæmdir í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að tilgreina ranglega allt að þúsund tonn af sjávarafurðum til útflutnings, en þeir merktu ýsu sem þorsk og keilu sem steinbít. Þannig blekktu þeir útlendinga en brotin eru talin alvarleg.Héraðsdómur Reykjaness slær því föstu í dómsniðurstöðu sinni að framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Nordic Gourmet í Sandgerði og matsmaður og verkstjóri hjá fyrirtækinu hafi brotið lög um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða með því að hafa ranglega merkt allt að 488 tonn af ýsu og löngu sem þorsk og allt að 653 tonn af keilu sem steinbít.Fiskistofa kærði tvímenninganna í júní árið 2007 til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra eftir að kvörtun barst frá kaupanda í Þýskalandi sem hafði átt viðskipti við Nordic Gourmet. Í kjölfarið hóf Fiskistofa athugun á fyrirtækinu og kom fljótt í ljós að fyrirtækið seldi mikið magn af þorski og steinbít en keypti miklu minna af þeim sjávarafurðum. Með þessu sparaði fyrirtækið fjármuni í hráefniskaupum með því að láta lít út fyrir að afurðir væru aðrar og verðmeiri en raunin var.Hinir ákærðu neituðu báðir að gefa skýrslu fyrir dómi en við skýrslutöku hjá lögreglu gekkst framkvæmdastjórinn við því að hafa keypt löngu og ýsu og selt sem þorsk. Þá kvað hann alla keilu hafa verið selda sem steinbít. Hann sagði aðstæður á mörkuðum og kvótaleysi fiskvinnslunnar hefðu valdið því að fyrirtækið fór þessa leið.Yfirlögfræðingur Fiskistofu sagði við aðalmeðferð málsins að brot tvímenninganna væru alvarleg. Þeir hefðu blekkt kaupendur og háttsemin gæti skaðað íslenskan sjávarútveg því útlendir kaupendur þyrftu að geta treyst merkingum. Ákærðu eru taldir hafa sparað sér 175 milljónir króna með þessum blekkingum.Með hliðsjón af hreinu sakarvottorði hinna ákærðu og þeirra tafa sem urðu á rannsókn málsins hjá lögreglu þótti refsing þeirra ákveðin hæfileg átta mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira