Þessi kynnu að eiga erindi í Kauphöllina 2. júní 2010 06:00 Í Kauphöllinni Magne Arge, forstjóri Atlantic Airways og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, við skráningu Atlantic Airways á markað hér á landi undir árslok 2007. Markaðurinn/Vilhelm
Félögum í Kauphöllinni (Nasdaq OMX Iceland) hefur fækkað verulega og varð náttúrulega mesta blóðtakan með falli bankanna haustið 2008. Núna eru einungis níu fyrirtæki skráð á aðallista Kauphallarinnar og þrjú eru skráð á First North-markaðinn. Af félögum á aðallista eru fjögur færeysk: Føroya Banki, Eik Banki, Atlantic Airways og Atlantic Petroleum. Íslensku fyrirtækin eru svo Icelandair Group, Marel, Nýherji, Sláturfélag Suðurlands og Össur. Það er hins vegar ekki svo að hér á landi sé ekki að finna fyrirtæki tæk á markað. Allmargir telja raunar að hér sé að finna fjölda fyrirtækja sem bæði gætu haft af því hag að sækja fjármögnun á markað og fjárfestar kynnu að hafa áhuga á. Eitt slíkt fyrirtæki hefur þegar upplýst um fyrirætlan sína um skráningu en það er nýsköpunarfyrirtækið Marorka, sem hannar og framleiðir orkusparandi búnað fyrir skip. Hér fer á eftir listi yfir fyrirtæki sem kynnu að koma upp í hugann þegar velt er upp kostum hér innanlands sem erindi kynnu að eiga í endurreista Kauphöll. Taka ber fram að listinn er ekki tæmandi og segir ekkert um áhuga aðstandenda þessara fyrirtækja á því að leita skráningar: 66° Norður - framleiðandi útivistar- og vinnufatnaðar. Arion Banki - banka- og fjármálaþjónusta á landsvísu. Brim - útgerðarfélag með starfsemi víða um land. CCP - hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur að þróun og framleiðslu tölvuleikja. Eimskip - flutningafyrirtæki með starfsemi heima og erlendis. Hagar - verslunarfyrirtæki með fjölda verslana (m.a. Bónus og Hagkaup). Icelandic Group - samstæða fyrirtækja í framleiðslu og sölu sjávarafurða. Íslandsbanki - sinnir banka- og fjármálaþjónustu á landsvísu. Jarðboranir - sérhæft fyrirtæki á sviði jarðhitanýtingar. Landsbankinn - sinnir banka- og fjármálaþjónustu á landsvísu. MP Banki - banka- og fjármálaþjónustufyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Promens - framleiðslufyrirtæki í plastiðnaði með starfsemi víða um heim. Fasteignafélagið Reitir - þjónustufyrirtæki sem leigir út atvinnuhúsnæði. Skeljungur - olíufélag með þjónustu- og verslunarrekstur um land allt. Vodafone - fjarskipta- og símafyrirtæki með starfsemi um land allt. Samherji - flutningafyrirtæki með starfsemi heima og erlendis. Síminn - fjarskipta- og símafyrirtæki með starfsemi um allt land. Sjóvá - Sjóvá-Almennar líftryggingar, tryggingafélag með starfsemi um land allt. TM - Tryggingamiðstöðin er tryggingafélag með starfsemi um land allt. Valitor - þjónustufyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar. VÍS - Vátryggingafélag Íslands, stærsta tryggingafélag landsins.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira