Íslandsbanki afskrifar 4 milljarða kúlulán starfsmanna 2. júní 2010 15:03 Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir að með þessu sé ekki verið að firra umrædda starfsmenn ábyrgð, enda hafi þeir aldrei neina persónulega ábyrgð borið.
Kúlulán níu núverandi starfsmanna Íslandsbanka, uppá ríflega fjóra milljarða króna, verða afskrifuð. Starfsmennirnir fengu lánin hjá Glitni til hlutafjárkaupa í bankanum sjálfum í gegnum einkahlutafélög. Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því að starfsmennirnir gefi félög sín upp til gjaldþrotaskipta, segir í frétt RÚV. Lánin voru veitt árið 2008 og voru hluti af svokölluðu tryggða- og hvatakerfi Glitnis, en þar voru einkahlutafélögum starfsmanna veitt kúlulán til að kaupa hlutabréf í bankanum, en áhættan var öll bankans. Íslandsbanki hefur lagt áherslu á að umræddir starfsmenn hafi ekki haft neinn fjárhagslegan ávinning af lánunum þar sem ekki hafi verið greiddur út arður til þeirra af hlutabréfunum. „Þetta er auðvitað bara sú leið sem farin er allstaðar þar sem fólk skuldar bankanum, við fylgjum reglum bankans. Eini munurinn er sá að bankinn krefst þess að þessir starfsmenn geri sín félög gjaldþrota áður en til gjalddaga er komið. Það er gert vegna þess að það er alveg augljóst að bankinn fær ekkert af þessum peningum til baka," sagði Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka í fréttinni. Hann segir að með þessu sé ekki verið að firra umrædda starfsmenn ábyrgð, enda hafi þeir aldrei neina persónulega ábyrgð borið. Reikna má með að fjöldi fyrrverandi starfsmanna Glitnis muni einnig fara sömu leið, en kúlulán bankans til einkahlutafélaga starfsmanna sinna nema tugum milljarða króna.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira