Greining spáir vægari samdrætti í ár á Íslandi 2. júní 2010 08:41
Greining Arion banka gerir ráð fyrir vægari samdrætti á þessu ári eða 1,5% samdrætti, í stað 2,4% eins og fyrri spá greiningarinnar gerði ráð fyrir. Á móti kemur að spáin fyrir árið 2011 hefur verið lækkuð og er nú gert ráð fyrir 1,7% vexti á árinu 2011, í stað 3,9% vaxtar. Fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir að vöxturinn verði kominn rétt yfir 4% á því ári. Í umfjöllun greiningarinnar segir að einkaneysla lækkaði mjög skarpt eða 22% á árunum 2008 og 2009. Þessi mikla lækkun kom líklega fáum á óvart en hins vegar hefur viðsnúningurinn til baka verið mun hraðari en spár greiningarinnar gerðu ráð fyrir. „Einkaneysla tók þannig að aukast milli ársfjórðunga á þriðja ársfjórðungi 2009, þrátt fyrirskattahækkanir, hátt atvinnuleysi, hátt vaxtastig og daprar væntingar. Þennan viðsnúning má líklega að stóru leyti rekja til skammtímaúrræða ríkisstjórnarinnar sem var ætlað að bæta greiðslustöðu heimilanna og hafa veitt tímabundna viðspyrnu fyrir einkaneyslu landsmanna," segir greiningin. „Þessi áhrif munu þó senn fjara út og við spáum því að neysla landsmanna muni taka aðra dýfu niður á við þegar úrræða eins og frystingar lána og útgreiðslu séreignarsparnaðar nýtur ekki lengur við. Gangi spá okkar eftir verður viðsnúningurinn því W-laga (e. double dip recovery) í stað hins klassíska V-laga eins og fyrri hagsveiflur hafa sýnt. Við höfðum áður gert ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í einkaneyslu á fyrri hluta þessa árs 2010 og þá yrði botninum náð. Hins vegar eru vísbendingar um ágætan gang í einkaneyslu á fyrsta ársfjórðungi 2010 m.a. vegna fyrrgreindra stjórnvaldsaðgerða. Það eru í sjálfu sér ágætar fréttir að öðru leyti en því að botninum hefur ekki enn verið náð. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar, frysting lána, greiðsluaðlögun afborgana og útgreiðslur séreignasparnaðar, hafa náð að draga úr kaupmáttarskerðingu heimila strax eftir hrunið. Hins vegar er hér um tímabundnar lausnir að ræða og nú fara áhrif vegna þessara aðgerða að fjara út. Róður heimila mun því fljótlega þyngjast á ný. Útgreiðslur séreignasparnaðar, 40 þúsund einstaklingar nýttu sér útgreiðslur sparnaðar á síðasta ári, til að mæta samdrætti í ráðstöfunartekjum. Heildargreiðslur síðasta árs námu 22 milljörðum kr. eða sem nemur 3% af einkaneyslu síðasta árs. Verulega hefur dregið úr útgreiðslum sparnaðar á þessu ári og munu áhrif vegna þessa koma fljótlega fram í einkaneyslu. Heimilin eyða ávallt svipuðu hlutfalli af ráðstöfunartekjum sínum til neyslu, þannig vex einkaneysla með auknum ráðstöfunartekjum en dregst saman þegar tekjur lækka. Frá stríðslokum hefur hlutdeild einkaneyslu í landsframleiðslu (VLF) farið minnkandi og mældist einkaneysla t.a.m. nálægt 80% af VLF eftir stríð en nemur í dag í kringum 50% og hefur aldrei mælst lægri. Þetta sögulega lága hlutfall má vitanlega rekja til sérstakra aðstæðna í efnahagslífinu, fallandi kaupmáttar og skuldakreppu almennings. Minnkandi vægi einkaneyslu jafnt og þétt sl. áratugi endurspeglar hinsvegar m.a. hvernig ríkið hefur á síðustu áratugum tekið meira til sín af tekjum fólks með sköttum. Á síðasta ári voru skattar á bæði tekjum og vörum hækkaðir sem kemur niður á tekjum heimila og nú hafa frekari skattahækkanir verið boðaðar. Greiningardeild gerir ráð fyrir að vægi einkaneyslu haldist áfram í lágmarki út spátímabilið."
Mest lesið Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Spá hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Sjá meira