Rúm fjörutíu prósent fyrirtækja eru í vanskilum við Íslandsbanka 2. júní 2010 04:00 Fjárhagsleg endurskipulagning þarf að fara fram áður en hægt verður að skrá fyrirtæki á markað, segir bankastjóri Íslandsbanka. Fréttablaðið/GVA
Tæpur helmingur fyrirtækja er í skilum með lán sín við Íslandsbanka og tæp tíu prósent á athugunarlista. Rétt rúm fjörutíu prósent fyrirtækja eru í vanskilum. Sjávarútvegsfyrirtæki eru flest í skilum við bankann en tæp áttatíu prósent eignarhaldsfélaga. Þetta kom fram í máli Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, á morgunfundi Samkeppniseftirlitsins um yfirtöku banka á atvinnufyrirtækjum fyrir rúmri viku síðan. Birna benti á að inni í eignarhaldsfélögunum væru oft á tíðum traust félög sem væru ýmist í skilum eða í fjárhagslegri endurskipulagningu. Jafnframt kom fram í máli hennar að bankinn hefði ekki tekið mörg fyrirtæki yfir. Þau sem lent hafi í höndum bankans fari hins vegar sem fyrst í söluferli sem sé opið og gagnsætt ef því verði komið við. Birna kvaðst hins vegar hafa efasemdir um skráningu fyrirtækja í eigu bankanna á markað við núverandi aðstæður. Hún sagði markaðsskráningu vera ábyrgðarhluta og að vinna verði með fyrirtækin og laga til í rekstri þeirra áður en að skráningu geti komið. Þá sagði Birna það vænlegri leið að selja fyrirtækin fyrst fjárfestum, sem síðan kynnu að innleysa hagnað þegar þau yrðu skráð síðar á hlutabréfamarkað. - jab/óká
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Sjá meira