Samþykkir kröfu fyrrverandi fjármálastjóra Straums 7. júní 2010 18:30
Krafa fyrrverandi fjármálastjóra Straums Burðaráss upp á 179.292 pund, 34 milljónir króna, var í Héraðsdómi Reykjavíkur samþykkt sem forgangskrafa í þrotabú bankans. Hann féll frá tveggja milljón evra kröfu. Þrotabú Straums skal greiða fjármálastjóranum fyrrverandi 600 þúsund krónur í málskostnað. Stephen Andrew Jack var ráðinn til starfa hjá Straumi þann 19. október 2007. Í ráðningarsamningi var meðal annars kveðið á um eingreiðslu kaupauka við undirritun samningsins og um mögulega greiðslu árlegs kaupauka. Þá segir í ráðningarsamningi að verði um að ræða breytt eignarhald eða breytingu á hlutverki félagsins innan tveggja ára frá upphafi ráðningar geti Jack innan 30 daga rift samningnum og eigi hann þá rétt á greiðslu upp á tvær milljónir evra, samkvæmt dómnum. Fjármálaeftirlitið tók Straum yfir í mars 2009 og í kjölfarið var honum sagt upp störfum og vísaði til þess ákvæðis í ráðningarsamningi aðila um heimild hans til uppsagnar vegna breytts eignarhalds hjá varnaraðila í kjölfar skipunar skilanefndar. Þá vísaði Jack enn fremur til ákvæðis ráðningarsamnings um skyldu varnaraðila til greiðslu að fjárhæð tveggja milljón evra innan 30 daga. Í kjölfar þessarar uppsagnar gerðu aðilar svo með sér samkomulag 30. apríl 2009 sem aðstoðarmaður varnaraðila í greiðslustöðvun samþykkti. Þar sömdu aðilar um að sóknaraðili héldi áfram störfum hjá varnaraðila til 31. maí 2009 og að réttur hans til kaupaukagreiðslu samkvæmt grein 4.3 í ráðningarsamningi stæði óhögguð en samhliða féll sóknaraðili frá kröfu um eingreiðslu upp á tvær milljónir evra með því skilyrði að samningurinn yrði virtur og að umdeild kaupaukagreiðsla yrði innt af hendi.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira