Flókið og erfitt að láta krónuna fljóta 26. mars 2010 06:00 Már Guðmundsson Mynd/GVA
Fréttaskýring: Hvað kom fram í Seðlabankanum í gær? Endurskoða þarf lög um Seðlabankann í tengslum við endurskoðun á peningastefnunni, að mati Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. „En að mínu viti þarf að skoða ýmislegt í þeim lögum hvort sem er," sagði hann á ársfundi Seðlabankans sem haldinn var í gær. „Ég tel mjög brýnt að reynt verði að stuðla að eins mikilli þverpólitískri sátt um þá endurskoðun og kostur er." Seðlabankastjóri sagði helstu ástæðu endurskoðunar peningastefnunnar að móta þyrfti þá stefnu sem tæki við af efnahagsáætluninni með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. „Því að hún hentar ekki þegar gjaldeyrishöftum hefur verið aflétt og Ísland er aftur orðið í fullum fjármálalegum tengslum við umheiminn." Um leið sagði Már að draga þyrfti lærdóm af framkvæmd peningastefnunnar á ofþenslutímanum og í aðdraganda fjármálakreppunnar. „Verðbólgumarkmið og flotgengi ollu ekki bankahruninu enda væru þá mun fleiri bankakerfi hrunin um allan heim en raunin varð. En peningastefnan var hluti af þeirri atburðarás sem hér varð og margvíslegir erfiðleikar komu fram við framkvæmd hennar í þeim aðstæðum sem hún bjó við." Hér segir hann vandann helst hafa falist í að samspil mismunandi hluta efnahagsstefnunnar hafi ekki verið sem skyldi. „Auk þess sem ljósara hefur orðið að framkvæmd frjáls flotgengis er flókin og erfið í mjög litlum opnum hagkerfum sem eru tengd umheiminum sterkum fjármálalegum böndum." Már sagði að endurmeta þyrfti hugmyndir sem byggðust á skörpum skilum á milli peningastefnu og fjármálastöðugleikastefnu. „Og taka verður meira mið af þeirri sérstöku áhættu sem fylgir litlum og óstöðugum gjaldmiðli." Í endurskoðun bankans verða krufðir til mergjar tveir möguleikar. Annars vegar þátttaka í Myntbandalagi Evrópu og hins vegar sú peningastefna sem kæmi til greina ef Ísland stendur utan Evrópusambandsins og Myntbandalagsins. „Sú stefna gæti líka nýst í aðdraganda aðildar ef af verður. Stefnt er að áfangaskýrslu snemma sumars og ítarlegri skýrslu snemma árs 2011," sagði Már. Seðlabankastjóri áréttaði skoðun sína um að gefist til þess tækifæri ætti sem fyrst að aflétta hér gjaldeyrishöftum. „Þau hafa gegnt mikilvægu hlutverki í þeim árangri sem hefur náðst. Kostnaðurinn af þeim hefur hingað til líklega verið minni en ella sakir þess að aðrir þættir hömluðu viðskiptum og erlendu samstarfi. En eftir því sem á líður mun kostnaðurinn við margs konar óhagræði og glötuð viðskiptatækifæri færast í vöxt." Verði niðurstaðan sú að haldið verði í höftin mun lengur en áður hefur verið áformað og ekki frekari aðgangur að erlendu lánsfé í bráð, nema á afarkjörum, sagði Már að móta þyrfti nýja efnahagsáætlun sem tæki mið af þeirri stöðu. „Þá yrði allt kapp lagt á að koma í veg fyrir að gjaldeyrisforði landsins yrði hættulega lítill í framhaldi af afborgunum lána ríkissjóðs veturinn 2011 og 2012. Stefnan í ríkisfjármálum þyrfti að vera aðhaldssamari en nú er áformað. Að því er peningastefnuna varðar myndi togast á að þjóðarbúskapurinn yrði veikari en gengi krónunnar lægra." Már sagði að gjaldeyrisforði Seðlabankans hefði í árslok numið rétt rúmlega 480 milljörðum króna eða 2,7 milljörðum evra og hefði lítið breyst síðan. „Skilanefndir föllnu bankanna eiga innstæður í Seðlabankanum fyrir nær einn milljarð evra. Þær munu greiðast út á næstu misserum og árum. Ef þessar innstæður eru dregnar frá forðanum ásamt öðru því sem ætla má að fari úr honum á næstu tólf mánuðum, standa eftir 1,4 milljarðar evra. Það rétt hrekkur fyrir afborgunum af erlendum lánum ríkissjóðs veturinn 2011 og 2012 sem nema samtals 1,4 milljörðum," sagði Már. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira