Aflinn dróst saman á milli ára 13. janúar 2010 09:18
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 10,3% minni en í desember 2008. Árið 2009 jókst aflinn um 2,9% miðað við árið 2008, sé hann metinn á föstu verði. Aflinn í desember 2009 var 57.635 tonn samanborið við 85.639 tonn í sama mánuði árið áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Botnfiskafli stóð í nokkurn veginn stað frá desember 2008 og nam tæpum 33.200 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 14.800 tonnum, sem er um 2.700 tonna aukning frá árinu áður. Ýsuaflinn nam tæpum 4.200 tonnum sem er um 1.800 tonnum minni afli en í desember 2008. Ufsaaflinn dróst saman um tæp 1.200 tonn og nam rúmum 5.500 tonnum. Um 3.900 tonn veiddust af karfa sem er 1.100 tonnum minni afli en í desember 2008. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 22.600 tonnum sem er um 28.000 tonnum minni afli en í desember 2008. Skýrist sú breyting af 34.300 tonnum minni síldarafla frá árinu áður, en í desember veiddust einnig um 6.100 tonn af gulldeplu. Nær ekkert var veitt af henni í desember 2008. Flatfiskaflinn var rúm 1.500 tonn í desember 2009 samanborið við 2.000 tonna afla í desember 2008. Skel- og krabbadýraafli nam 229 tonnum í desember 2009. Á vef Hagstofunnar kemur fram að afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira