Telur að ESA mótmæli ekki eignarhaldi Húsasmiðjunnar 20. júlí 2010 16:56
Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Vestia, væntir þess að ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, muni ekki gera athugasemd við eignarhald Landsbankans á Húsasmiðjunni. Hann fagnar því að fá álit ESA á því flókna verkefni sem fjárhagsleg endurskipulagning íslenskra fyrirtækja er í því erfiða árferði sem nú ríkir í íslensku efnahagslífi. Þetta kemur fram í tölvupósti til Vísir.is. Múrbúðin hefur sent kvörtun til ESA vegna yfirtöku Landsbankans á Húsasmiðjunni. Vestia heldur utanum hlut Landsbankans í Húsasmiðjunni. Múrbúðin telur að yfirtaka og eignarhald Landsbankans á Húsasmiðjunni feli í sér misnotkun á markaðsráðandi stöðu í skilningi 54. greinar EES samningsins. Ennfremur telur Múrbúðin að eignarhaldið feli í sér ólögmætan ríkisstyrk í skilningi 61. greinar EES samningsins. „Það er mat þeirra sérfræðinga sem ég hef rætt við að aðkoma Vestia að Húsasmiðjunni stangist á engan hátt á við samkeppnisreglur hins evrópska efnahagssvæðis né reglur þess um ríkisaðstoð. Ég vænti þess því fastlega að ESA mun ekki gera athugasemd við aðkomu bankans að hinni fjárhagslegu endurskipulagningu Húsasmiðjunnar og eignarhaldi Vestia á fyrirtækinu," segir Steinþór í tölvupósti til Vísir.is. Hann bendir á að aðkoma Vestia að Húsasmiðjunni hefur þegar komið til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu sem ekki lagðist gegn eignarhaldi Vestia á fyrirtækinu heldur setti því einungis skilyrði. „Þeim skilyrðum var gagngert ætlað að draga úr áhrifum eignarhaldins á samkeppnisaðila Húsasmiðjunnar og býst ég því við að þau skilyrði séu fullnægjandi til að tryggja þá hagsmuni sem kvörtun Múrbúðarinnar lítur að," segir Steinþor. „Við erum í því hlutverki að vinna úr erfiðum verkefnum vegna afleiðinga hrunsins og hefur félagið við þá vinnu að leiðarljósi leiðbeinandi tilmæli Samkeppniseftirlitsins um þessi efni. Einnig hefur Vestia við þessa vinnu sett sér markmið m.a. um að lágmarka eignarhaldstíma á atvinnufyrirtækjum og er unnið hörðum höndum að því markmiði. Dæmi um slíkt er nýleg sala á Tal og söluferli á Parlogis er yfirstandandi. Það er von okkar að geta hafið söluferli fleirri eignarhluta á næstunni," segir hann.
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira