Innflutningstölur sýna að botninum er náð í kreppunni 3. ágúst 2010 10:55
Innflutningur jókst á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Aukningin í magni mæld var lítil eða 0,8% en um er að ræða viðsnúning engu að síður frá því sem hefur verið í undangenginni kreppu. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á sama tímabili í fyrra var þannig 43% samdráttur í innflutningi. Ekki hefur mælst aukning í innflutningi á fyrri hluta árs í magni talið frá árinu 2006. Er þetta vísbending um að hagkerfið hafi fundið botninn og sé nú tekið að vaxa á ný á ýmsum sviðum eftir undangengna gjaldeyris- og bankakreppu. Það var Hagstofan sem birti tölur um þetta á föstudaginn. Tæplega 4% vöxtur var í innflutningi neysluvara á fyrri hluta þessa árs. Fyrir ári var 49% samdráttur í sömu stærð. Viðsnúningurinn þar er því verulegur á milli ára og til merkis um að neyslan sé nú farin að vaxa á ný eftir verulegan samdrátt í kreppunni. Innflutningur á flestum sviðum hefur tekið við sér s.s. innflutningur á fatnaði og heimilistækjum. Lítilsháttar samdráttur mælist enn í innflutningi á bifreiðum en á móti hefur innflutningur á varahlutum í ökutæki aukist til muna eða um 10% á milli ára en bifreiðaflotin hefur elst nokkuð í kreppunni. Fluttar voru inn neysluvörur fyrir 51,8 ma.kr. á fyrri hluta þessa árs samanborið við 48,7 ma.kr. á sama tímabili í fyrra. Áhugavert er að innflutningur á fjárfestingarvörum fer nú vaxandi. Í magni er aukningin 15% á milli fyrri hluta þessa árs og sama tímabils í fyrra. Verulegur samdráttur var í þessum innflutningi í kreppunni og var samdrátturinn fyrir ári 69%. Hér er því um umtalsverðan viðsnúning að ræða. Fluttar voru inn fjárfestingarvörur á fyrri hluta þessa árs fyrir tæplega 39 ma.kr. en innflutningurinn var ríflega 31 ma.kr. á sama tíma í fyrra.
Mest lesið Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi Neytendur Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Viðskipti innlent „Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” Atvinnulíf Sólon lokað vegna gjaldþrots Viðskipti innlent Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Viðskipti innlent „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Viðskipti innlent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Viðskipti innlent Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ Atvinnulíf Ráðin hagfræðingur SVÞ Viðskipti innlent Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira