Eimskip skilar hagnaði 14. maí 2010 12:22
Afkoma Eimskipafélags Íslands hf. eftir skatta er jákvæð um 2,3 milljónir evra eða 423 milljónir kr. fyrir tímabilið frá 1 október - 31. desember 2009. Í tilkynningu segir að rekstrarafkoma var jákvæð um 8,5 milljónir evra eða 1.561 milljónir kr. Heildareignir félagsins eru 279 milljónir evra eða 50 milljarðar kr. og var eiginfjárhlutfall félagsins 53,7% í lok árs 2009. Vaxtaberandi skuldir félagsins eru 81 milljónir evra eða 14,6 milljarðar kr. Eimskip fór í gegnum heildar endurskipulagningu á árinu 2009. Í tengslum við endurskipulagninguna tóku kröfuhafar og nýr fjárfestir yfir flutningastarfsemi félagsins þann 1.október 2009 og skipuðu nýja stjórn. Hluthafar félagsins eru nú 74 talsins, gamli Landsbankinn fer með 37% hlut og bandaríski fjárfestingasjóðurinn Yucaipa fer með 32% hlut en sjóðurinn kom að endurskipulagningu félagsins með því að fjárfesta í frystigeymslustarfseminni í Norður Ameríku og leggja inn nýtt hlutafé í endurskipulagt félag. Í dag er Eimskip með starfsemi í 16 löndum og hefur á að skipa 1.250 starfsmönnum, þar af vinna um 730 starfsmenn á Íslandi. Stefna félagsins er að veita öfluga flutningaþjónustu á Norður Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka frystiflutningsmiðlun. Um helmingur af tekjum félagsins koma frá starfsemi utan Íslands. Fyrsti ársfjórðungur ársins 2010 er í takt við áætlanir og er að skila jákvæðri afkomu fyrir skatta að fjárhæð EUR 1,9 milljónir evra 329 milljónir kr. og rekstrarafkoma (EBITDA) er jákvæð um 7,7 milljónir evra eða 1,4 milljarðarkr. Á árinu 2009 fór Eimskip í gegnum miklar skipulags og hagræðingaraðgerðir sem eru að skila sér í jákvæðri rekstrarafkomu. Ytra umhverfi fyrirtækisins er hinsvegar erfitt og töluverður samdráttur hefur verið í flutningamagni á markaðssvæði félagsins á Norður Atlantshafi. Eimskip hefur unnið markvisst að því að móta stefnu félagsins á sviði flutningastarfsemi og er árangur þeirrar vinnu nú að líta dagsins ljós. „Það er brýnt fyrir íslenskt atvinnulíf að hjólin fari að snúast í rétta átt og að við lítum fram á veginn, því er það mjög mikilvægt að fyrirtæki eins og Eimskip leiði uppbygginguna með jákvæðri afkomu. Þau fyrirtæki sem byggja á gömlum og traustum grunni þurfa að leita aftur í uppruna sinn og að byggja upp að nýju á réttum forsendum," segir í tilkynningunni. „Eimskip er eitt þeirra fyrirtækja sem fór mjög illa í offjárfestingu, skuldsetningu, ómarkvissri stefnu og aðhaldsleysi. Flutningastarfsemi Eimskip byggir á gömlum og traustum stoðum og félagið hefur á að skipa góðu starfsfólki með áralanga reynslu sem auðveldar alla uppbyggingu til framtíðar, nú þegar félagið nálgast 100 ára afmæli sitt."
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira