
Við erum sammála
Nú held ég að það sé ekki raunhæft að tala um það að þetta aðildarferli verði dregið til baka. Ég held að menn verði að ganga leiðina alla leið. Það er náttúrlega það mikilvægasta fyrir okkur er það að reyna að gera eins góðan samning eins og við mögulega getum fyrir Íslands hönd um sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál og önnur þau ágreiningsefni sem eru þar fyrir, til þess að menn geti tekið afstöðu, vegna þess að ef að á einhverjum tímapunkti menn taka þá ákvörðun um að fara þar inn, við vitum náttúrlega að eins og staðan er núna, þá eru menn á móti, það getur sveiflast og þar af leiðandi er það algjört lykilatriði að menn reyni að ná ítrustu kröfum sínum fram í þeim samningaviðræðum sem eru fram undan," sagði formaður LÍÚ í viðtalinu.
Beitum okkur af alefliÞetta viðhorf Adolfs er í fullu samræmi við það sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á 39. landsfundi flokksins 25. júní sl.:
„En ég vil jafnframt að eitt sé alveg skýrt hvað mögulegt framhald þessa máls varðar. Ef viðræður við Evrópusambandið halda áfram þá er það skylda okkar að beita okkur af alefli fyrir því að hagsmuna Íslands verði gætt í hvívetna í viðræðuferlinu. Þá mun Sjálfstæðisflokkurinn gera allt sem í hans valdi stendur til að sá samningur sem kann að verða gerður við Evrópusambandið verji hagsmuni okkar Íslendinga sem allra best. Þjóðin tekur svo afstöðu til samningsins. Um þetta hljótum við öll að vera sammála," sagði formaður Sjálfstæðisflokksins.
Alveg eins og LÍÚ lítur á málið er það hættuspil fyrir Sjálfstæðisflokkinn að freista þess að loka á umræðu og vera staðinn að því að spilla fyrir að besti hugsanlegi samningur verði lagður fyrir þjóðina. Þá er ferlið í raun ómarktækt og málið ekki til lykta leitt á réttum forsendum. Málið yrði því enn óútkljáð og héldi áfram að vera fleinn í þjóðmálaumræðunni.
Lýðræðisins vegnaVinstri hreyfingin - grænt framboð tók raunsæja afstöðu til aðildarumsóknar við myndun núverandi ríkisstjórnar. Samfylkingin setti ESB umsókn á oddinn í alþingiskosningum sem þá voru nýafstaðnar og skýr þingmeirihluti var fyrir því að láta reyna á umsókn. Líklega hefur þorri Vinstri grænna metið það svo að Borgarahreyfingin og Framsóknarflokkurinn yrðu staðfastari í kosningaafstöðu sinni en raunin hefur orðið. Fyrir afstöðu meirihluta þingmanna VG voru full rök eins og kom fram hjá Ögmundi Jónassyni í grein í Morgunblaðinu 22. júní 2009:
„Ég skal játa að sjálfur þarf ég að taka mér tak til að samþykkja umsóknarbeiðni að Evrópusambandinu. Það ætla ég hins vegar að gera lýðræðisins vegna. Ég vil að þjóðin taki sjálf ákvörðun milliliðalaust og til þess að geta tekið ákvörðun telur drjúgur hluti hennar sig þurfa að fá í hendur samningsdrög. Við þeim óskum tel ég að eigi að verða," sagði Ögmundur Jónasson, þáverandi ráðherra."
Ögmundur hvikar ekki frá afstöðu sinni þrátt fyrir að andstaða hans við aðild hafi ekki breyst. Hann sagði þann 17. febrúar 2010 á Alþingi:
„Ég vil fá úr því skorið hver vilji þjóðarinnar er í lýðræðislegum kosningum. Þetta er skýringin á stuðningi mínum við þessa aðildarumsókn. Hitt hefur ekkert breyst að ég er sjálfur mjög andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið." Orð þessi féllu í umræðu um fyrirspurn frá Einari K. Guðfinnssyni alþingismanni um Evrópumálin.
Teningunum er kastaðSamningaviðræður eru hafnar og við hljótum öll að taka undir með Bjarna Benediktssyni, Ögmundi Jónassyni og Adolf Guðmundssyni. Við hljótum öll að vera sammála um að leggjast á eitt um að ná fram sem bestum aðildarsamningi til þess að leggja fyrir þjóðina.
Sannfærðum andstæðingum aðildar ætti að vera það fagnaðarefni að samningar skuli hafnir enda hafa þeir náð hörmulegum árangri í aðildarsamningum við sjálfa sig í fjölmiðlum á liðnum mánuðum. Verði niðurstaðan eitthvað í líkingu við þeirra spár munu þeir varla þurfa að óttast að hann verði samþykktur. Náist á hinn bóginn fram góður samningur, sem tekur mið af íslenskum grundvallarhagsmunum eins og Alþingi hefur lýst þeim, og stuðningsmenn aðildar hafa fulla trú á að sé hægt, þá er staðan gjörbreytt. Þá fyrst er hægt að hefja alvöru umræðu um kosti og galla aðildar, á grundvelli besta mögulega samnings þar sem allir hafa lagt hönd á plóg. Þjóðaratkvæðagreiðsla sker síðan úr um það hvort besti mögulegi samningur dugi til þess að Íslendingar vilji ganga í Evrópusambandið.
Um þetta getum við verið sammála.
Skoðun

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar

Ferðamannaþorpin - Náttúruvá
Þóra B. Hafsteinsdóttir skrifar

Vonarsvæði fyrir framtíðina – ábyrgð stjórnvalda kallar á verndun
Huld Hafliðadóttir,Heimir Harðarson skrifar

Laxaharmleikur
Jóhannes Sturlaugsson skrifar

Lýðræðið í skötulíki!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Stærðfræðikennari sem kann ekki að reikna? (Og getur ekki lært það!)
Brynjólfur Þorvarðsson skrifar

Íslendingar greiða sama hlutfall útgjalda í mat og Norðurlöndin
Margrét Gísladóttir skrifar

Til varnar jafnlaunavottun
Magnea Marinósdóttir skrifar

Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi
Auður Guðmundsdóttir skrifar

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar