Viðskipti innlent

Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rýrna

Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 283,9 milljörðum kr. í lok september og lækkuðu um 877 milljónir kr. á milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að eignirnar eru 93% innlend verðbréf sem lækkuðu um 1,5 milljarða kr. og námu 265,9 milljörðum kr. í lok mánaðarins. Þar af námu íbúðabréf 96,2 milljörðum kr. og önnur ríkisbréf 97,3 milljörðum kr.

Erlend verðbréf námu 10,1 milljarði kr. og hækkuðu um 269 milljónir kr. í lok september.

Í lok september var opið fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í 53 sjóðum. Auk þess voru 17 sjóðir í slitaferli taldir með í birtum gögnum í september, þar sem verið er að gera upp eignir sjóðanna áður en þeim verður lokað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×