FME gerir athugasemdir við starfsemi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 10. ágúst 2010 10:12
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur gert margvíslegar athugasemdir við starfsemi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Þar á meðal eru tvær alvarlegar athugsemdir. Fjallað er um málið á vefsíðu FME. Þar segir að framkvæmd var athugun á starfsemi Lífeyrissjóðs Vestfirðinga með heimsókn og gagnaöflun dagana 23.-24. febrúar 2010. Í kjölfar athugunarinnar rituðu fulltrúar Fjármálaeftirlitsins skýrslu þar sem fram komu athugasemdir eftirlitsins og kröfur um úrbætur er skyldi vera lokið innan nánar tiltekinna tímamarka. Voru drög að skýrslunni afhent sjóðnum þann 29. mars 2010 og honum gefið tækifæri til að koma sjónarmiðum sjóðsins og frekari upplýsingum á framfæri. Í endanlegri útgáfu skýrslunnar þann 8. júní 2010, var tekið tillit til þeirra athugasemda eftir því sem tilefni þótti til. Meðal þess sem kemur fram er að gerð var athugasemd við að framkvæmdastjóri uppfyllir ekki skilyrði laga um að hafa staðist próf í verðbréfaviðskiptum. Skilyrðið þarf að uppfylla frá og með 1. janúar 2011 ef framkvæmdastjóri hyggst áfram sinna eignastýringu fyrir sjóðinn. Gerð var athugasemd við að sjóðurinn hefði ekki haldið skrá um tilkynningaskyld viðskipti starfsmanna með fjármálagerninga eins og ber að gera samkvæmt gildandi verklagsreglum sjóðsins um verðbréfaviðskipti. Þá var ekki framfylgt öðrum ákvæðum er varða tilkynningaskyldu þeirra starfsmanna, sem koma að ákvörðunum eða framkvæmd viðskipta sjóðsins með fjármálagerninga, um öll viðskipti fyrir eigin reikning og verðbréfaeign þeirra þegar þeir tóku við starfi. Gerð var athugasemd við að engir verkferlar væru til staðar hjá sjóðnum varðandi fjárfestingaferli, ákvarðanir og framkvæmd þess. Gerðar voru alvarlegar athugasemdir við útfyllingu á skýrslum um sundurliðun fjárfestinga sjóðsins sem sendar eru Fjármálaeftirlitinu á þriggja mánaða fresti. Skýrslurnar voru illa unnar og verklagi við útfyllingu skýrslnanna verulega ábótavant. Gerð var athugasemd við það hversu lágt hlutfall ógreiddra iðgjaldakrafna væri í lögfræðilegri innheimtu þrátt fyrir aldur þeirra. Fjármálaeftirlitið fór fram á að sjóðurinn kæmi viðeigandi kröfum í formlegt innheimtuferli í samræmi við reglugerð um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þá voru engar verklagsreglur fyrirliggjandi hjá sjóðnum um innheimtu iðgjalda. Gerð var athugasemd við að ekki væri til staðar heildstæð áhættustýring hjá sjóðnum. Þá voru engir skjalfestir verkferlar, verklýsingar, innri eftirlitsferlalýsingar og lítið um innri reglur hjá sjóðnum. Farið var fram á að sjóðurinn hæfi vinnu við að móta innra eftirlit hjá sjóðnum og áhættustýringu. Gerð var alvarleg athugasemd við skil á gögnum frá sjóðnum til Fjármálaeftirlitsins, en gögn hafa nokkuð oft borist eftir skilafresti. Lífeyrissjóður Vestfirðinga hefur nú þegar brugðist við flestum athugasemdum Fjármálaeftirlitsins með viðeigandi úrbótum. Önnur atriði eru enn í vinnslu og hefur Fjármálaeftirlitið lagt áherslu á að þeim verði komið í viðunandi horf innan skamms tíma, að því er segir á vefsíðunni.
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira