Viðskipti innlent

5,2 milljarða hagnaður hjá Icelandair

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair segir að þrátt fyrir góða afkomu seu tveir krefjandi ársfjórðungar framundan.
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair segir að þrátt fyrir góða afkomu seu tveir krefjandi ársfjórðungar framundan.
Icelandair skilaði 5,2 milljarða króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert betri afkoma en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 4 milljörðum króna.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að mikill munur sé á rekstrartekjum félagsins á milli ára en þær hafi aukist um 5,8 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Á sama tímabili hafi rekstrargjöld aftur á móti aukist um 4 milljarða kr. milli ára.

„Bætt afkoma skýrist einkum af auknu framboði og aukinni sölu á Norður-Atlantshafsmarkaði en jafnframt af góðri sætanýtingu og tekjustýringu í leiðakerfi Icelandair,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni. „Þrátt fyrir góða afkomu á fyrstu níu mánuðum ársins liggur fyrir að framundan eru tveir krefjandi ársfjórðungar. Áframhaldandi óvissa í íslensku efnahagslífi er fyrirtækinu kostnaðarsöm og á næsta ári eru líkur á að samkeppni í millilandaflugi til og frá Íslandi harðni umtalsvert.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×