Hóta skaðabótamáli vegna gengislánadóms Hæstaréttar 3. júlí 2010 18:32
Erlendir kröfuhafar Glitnis og eigendur Íslandsbanka eru uggandi eftir dóm Hæstaréttar og kanna nú réttarstöðu sína. Bankarnir gætu tapað mörgum tugum milljarða króna verði gengistryggð húsnæðislán og fyrirtækjalán dæmd ólögmæt. Kröfuhafarnir íhuga skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu vegna forsendubrests í samningum. Uppnám ríkir í herbúðum erlendra kröfuhafa eftir nýlegan dóm Hæstaréttar. Kröfuhafar Glitnis og Kaupþings eru stærstu eigendur Íslandsbanka og Arion, en bankarnir gætu þurft að afskrifa tugi milljarða króna vegna ólögmætis gengistryggðra bílalána. Engir fyrirvarar voru gerðir í samningum um lögmæti lánanna þegar innlendar eignir gömlu bankanna voru fluttar yfir í þá nýju. Eignirnar voru vissulega færðar yfir á miklum afslætti en ólíklegt er talið að hann einn dugi til að takast á við afskriftir séu gengistryggð húsnæðis- og fyrirtækjalán einnig undir. Unnið er að því í bönkunum að meta stöðuna og flokka útlán eftir tegundum. Ekki mun þó liggja fyrir hvert tapið verður fyrr en dómstólar hafa tekið fleiri lánasamninga fyrir. Í ársreikningi Landsbankans fyrir árið 2009 kemur fram að í versta falli gæti tap bankans numið 100 milljörðum króna. Sambærileg tala liggur ekki fyrir opinberlega hjá hinum bönkunum. Kröfuhafar Glitnis, og eigendur Íslandsbanka, funduðu með skilanefnd bankans í London á fimmtudaginn. Samkvæmt heimildum fréttastofu íhuga þeir að höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu vegna forsendubrests í uppgjörssamningum, en ríkið samdi á sínum tíma við skilanefndir bankanna um eignarhald og uppgjör á nýju bönkunum. Kröfuhafar Glitnis hafa nú þegar tapað á bilinu 1500-2000 milljörðum króna á falli bankans og eru uggandi yfir því að tapið gæti orðið enn meira. Kröfuhafar Kaupþings og eigendur Arion banka munu einnig vera að kanna sína réttarstöðu.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira