Lífeyrisaldur hækki í 68 ár 3. júlí 2010 09:56 Mannfjöldaspár benda til þess að hlutfall Íslendinga yfir 65 ára muni meira en tvöfaldast á næstu 40 árum. Samtök atvinnulífsins vilja hækka lífeyrisaldur til að sporna við skerðingu lífeyris og hærri iðgjöldum. Mynd/Pjetur
Samtök atvinnulífsins (SA) vilja að eftirlaunaaldur hjá lífeyrissjóðum verði hækkaður úr 65 og 67 árum í 68 ár. SA vilja með þessu bregðast við lengri meðalævi Íslendinga sem hafi haft í för með sér lægri lífeyri og hærri iðgjöld. "Þetta er eitthvað sem þarf virkilega að taka á þegar til framtíðarinnar er horft, og framtíðin kemur innan skamms," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Í flestum löndum Evrópu og raunar víðar hefur mikið verið rætt um hækkun eftirlaunaaldurs síðustu misseri. Í Frakklandi hefur ríkisstjórnin tilkynnt um áætlanir um að hækka eftirlaunaaldur úr 60 árum í 62 ár og á Spáni er unnið að því að hækka hann úr 65 árum í 67 ár. Eins hefur neðri deild þýska þingsins samþykkt að hækka eftirlaunaaldur úr 65 árum í 67 ár auk þess sem leiðtogar repúblikana í Bandaríkjunum hafa lýst yfir vilja til að hækka lífeyrisaldur þar upp í sjötugt. Hækkun hefur einnig mikið verið rædd í Grikklandi og Rússlandi. Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, segir ekki víst að þjóðfélagið yrði betur sett ef eldri borgarar væru í meira mæli í vinnu. Hann segir mun meira máli skipta að horfa á hagvöxtinn í landinu, ekki hversu margir séu á vinnumarkaði hverju sinni. Hækkun á lífeyrisaldri gæti haft í för með sér að sparnaður drægist saman sem hefði neikvæð áhrif á fjárfestingu og hagvöxt. Gylfi segir eldri borgara á Íslandi þegar vinna þarft og mikið verk.- mþl, sv
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira