Arion banki með ráðgjöf fyrir fólk í greiðsluvanda 5. nóvember 2010 11:07
Arion banki opnar laugardaginn 6. nóvember sérhæfða ráðgjafaþjónustu þar sem markmiðið er að koma sem best til móts við þarfir viðskiptavina sem eiga í greiðsluvanda. Í tilkynningu segir að hver viðskiptavinur fær sinn eigin ráðgjafa sem vinnur með honum allt ferlið og finna þeir í sameiningu þá lausn sem hentar hverju sinni. Ráðgjafinn fylgir síðan málum viðkomandi einstaklings eftir þar til allir lausir endar eru frágengnir. Í nýju ráðgjafaþjónustunni hefur sérfræðiþekkingu bankans á skuldamálum einstaklinga verið komið fyrir á einum stað til að auka skilvirkni og bæta árangur. Jafnframt hafa ábendingar viðskiptavina komið í góðar þarfir við hönnun og framsetningu þjónustunnar. Markmiðið er að allir sem eiga í greiðsluvanda hafi fengið úrlausn sinna mála innan nokkurra mánaða. Starfsfólk ráðgjafaþjónustunnar mun á næstu vikum og mánuðum eiga frumkvæði að samskiptum við þá viðskiptavini sem eiga í verulegum greiðsluvanda. Þessir einstaklingar geta einnig leitað til ráðgjafaþjónustunnar að eigin frumkvæði eða fengið ráðgjöf um þær lausnir sem í boði eru í öllum útibúum bankans. Þegar hefur Arion banki aðstoðað um 14.000 viðskiptavini í greiðsluvanda. Ráðgjafaþjónustan verður til húsa á 2. hæð við útibú Arion banka við Garðatorg 5 í Garðabæ og verður opin alla virka daga frá kl. 9 - 16.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira