Borgum 25% af launum okkar til að halda krónunni úti 29. nóvember 2010 12:12
Tuttugu og fimm prósent af launum Íslendinga fara í að greiða fyrir að halda úti íslenskri krónu, fullyrðir Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Íslendingar í krónulandi séu í efnahagslegum þrælabúðum. Guðmundur segir jafnframt að ef Íslendingar ættu að hafa svipuð laun og fólk annars staðar á Norðurlöndunum þyrftum við því að skila 25% lengri vinnuviku. En hvernig fær hann það út? „Það byggist nú fyrst og fremst á vöxtum. Á meðan við höfum þennan sveiflukennda gjaldmiðil þá geta vextir á Íslandi aldrei farið niður fyrir að vera 5% hærri en í öðrum evruríkjum." Guðmundur segir að vextirnir og verðtryggingin sé stærsta skýringin á þeim aukakostnaði sem íslenskir launamenn þurfi að greiða vegna krónunnar - en þar spili líka inn í áhrif hennar á matvælaverð og bendir á að virði krónunnar hafi frá fyrsta apríl 2006 til fyrsta apríl 2010 nánast helmingast með tilheyrandi lækkun kaupmáttar. Á þetta megi minna þegar kjarasamningar séu í vændum, enda vefjist fyrir íslenskum launamönnum að gera langtíma kjarasamninga, þegar stjórnmálamenn hafi endurtekið gengisfellt þá til að leiðrétta efnahagsleg mistök sín. „Staðan er sú að Rafiðnaðarsambandið á 40 ára afmæli nú um þessar mundir. Frá því það var stofnað um 1970 þá höfum við samið um launahækkanir upp á 3500%. Á sama tíma hafa félagar okkar í Danmörku samið um kauphækkanir upp á 330%. Samt stöndum við fyrir aftan þá í kaupmætti. Það eru ekki slappir kjarasamningar sem valda þessu heldur krónan og slöpp efnahagsstjórn sem er síðan alltaf leiðrétt með því að fella krónuna.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira