Allar líkur á talsverðum viðskiptajöfnuði næsta kastið 2. mars 2010 12:09
Greining Íslandsbanka telur allar líkur á að afgangur af viðskiptajöfnuði reynist talsverður næsta kastið, ef frá eru talin áhrif gömlu bankanna. Áfram séu horfur á myndarlegum afgangi af vöru- og þjónustujöfnuði vegna lágs raungengis krónu og tiltölulegra hagstæðrar verðþróunar helstu útflutningsvara okkar.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að áfram muni hins vegar verða talsverður halli á þáttatekjujöfnuði í ljósi þess að hrein erlend staða þjóðarbúsins er neikvæð. Sá halli mun að mati greiningarinnar ekki vega upp afgang af utanríkisviðskiptum.Undirliggjandi afgangur af viðskiptajöfnuði mun styðja við krónuna á næstunni líkt og verið hefur frá síðasta hausti. Þau áhrif eru þau mun óljósari en ella vegna áhrifa gjaldeyrishaftanna og óvissu um hve mikill þrýstingur til gjaldeyrisútflæðis kann að skapa þegar farið verður að aflétta þeim fyrir alvöru.Á síðasta fjórðungi ársins 2009 var 29 milljarða kr. afgangur á utanríkisviðskiptum með vöru og þjónustu. Halli á þáttatekjum nam hins vegar ríflega 40 milljörðum kr. á sama tíma og reyndist því viðskiptahalli 13,3 milljarða kr. á tímabilinu. Sú tala endurspeglar þó ekki undirliggjandi greiðsluflæði, þar sem þáttatekjuhallinn á að verulegu leyti rót í reiknuðum vaxtagjöldum gömlu bankanna. Þau gjöld eru hins vegar ekki greidd, enda greiðendurnir í slitameðferð.Að frátöldum áhrifum af gömlu bönkunum var 10,2 milljarða kr. afgangur af viðskiptajöfnuði á fjórðungnum, og endurspeglar sú tala betur greiðsluflæði til og frá landinu að mati greiningarinnar.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira