Ragna Árnadóttir ráðin skrifstofustjóri Landsvirkjunar 29. nóvember 2010 10:04
Ragna Árnadóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri Landsvirkjunar. Skrifstofustjóri situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins, stýrir verkefnum í umboði forstjóra og vinnur að samskiptum við stjórnsýslu og hagsmunaaðila. Í tilkynningu segir að Ragna var dóms- og kirkjumálaráðherra, síðar dómsmála- og mannréttindaráðherra, frá 1. febrúar 2009 til 2. september 2010. Hún starfaði áður í dómsmálaráðuneyti um sjö ára skeið sem skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra, auk þess að vera settur ráðuneytisstjóri um tíma. Ragna starfaði á skrifstofu Alþingis í fjögur ár og síðan önnur fjögur á skrifstofu Norðurlandaráðs í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Ragna er lögfræðingur að mennt. Hún hefur lokið meistaragráðu í Evrópurétti frá háskólanum í Lundi og útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1991. Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar segir ánægjulegt að fá Rögnu til starfa fyrir fyrirtækið á þessum tíma: „Það er mikill styrkur fyrir Landsvirkjun að fá Rögnu Árnadóttur til starfa. Hún hefur viðamikla stjórnunarreynslu og reynslu úr íslenskri stjórnsýslu sem á eftir að nýtast vel í þeim verkefnum sem framundan eru hjá fyrirtækinu," segir Hörður. Ragna tekur við af Agnari Olsen sem lætur af starfi vegna aldurs eftir áratuga farsælt starf hjá Landsvirkjun, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira