Viðskipti innlent

Eigið fé MP Banka er undir lágmarki FME

MP banki hefur ekki birt uppgjör fyrir fyrri helming ársins. Eigið fé bankans er undir þeim mörkum sem Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett honum, en bankinn hefur sent uppgjör sitt þangað til yfirferðar. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi.

Í yfirlýsingu frá bankanum kemur fram að stjórnendur og stjórn bankans séu sammála FME um að eigið fé bankans þurfi að styrkja. Vinnan við öflun eigin fjár gangi vel og niðurstöður eigi að liggja fyrir í lok desember.

"Lausafjárstaða bankans er sú sterkasta meðal íslenskra innlánsstofnana og samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki uppfyllir bankinn skilyrði um lágmarks eigið fé og hefur alltaf gert," segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka, í yfirlýsingunni. - sv

Yfirlýsingin í heild hljóðar svo:

"MP banki er eini viðskiptabankinn sem fór ekki í þrot í bankahruninu og hefur ekki fengið neinn opinberan stuðning. MP banki er ekki með gengistryggð bílalán eða húsnæðislán í eignasafni sínu. Af þessum ástæðum er MP banki fyrsti og eini íslenski bankinn sem hefur farið í gegnum innra mat á eiginfjárþörf í samstarfi við FME. Þetta er hluti af innleiðingu Basel II reglna eða svokallaðs ICAAP og SREP ferlis.* Í þessu ferli eru gerðar aðrar og mun strangari kröfur um mat á eiginfjárþörf en áður giltu.

Stjórn og stjórnendur bankans eru sammála FME um að styrkja þurfi eiginfjárgrunn bankans og er það í samræmi við fyrri yfirlýsingar stjórnar. Vinna við öflun eiginfjár og aðrar breytingar ganga vel og munu niðurstöður liggja fyrir í lok desember.

„ Lausafjárstaða bankans er sú sterkasta meðal íslenskra innlánsstofnana og samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki uppfyllir bankinn skilyrði um lágmarks eigið fé og hefur alltaf gert“ segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka.

Þegar óvissu um virði eigna annarra íslenskra viðskiptabanka hefur verið eytt, m.a. vegna gengislánafrumvarps, mun einnig þurfa að endurmeta eignir þeirra og eiginfjárstöðu samkvæmt þessum Basel II reglum.

MP banki telur samkeppnisstöðu sína á íslenskum markaði mjög sterka og aukið eigið fé mun gefa færi á frekari vexti bankans.

*Internal Capital Adequacy Assessment Process (ICAAP). Supervisory Review and Evaluation Process (SREP)."

 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×